Frjáls verslun - 01.01.1985, Blaðsíða 31
hagslega óhagkvæmt að vinnuafl
úr öðrum landsfjórðungi taki
vinnu frá heimamönnum.
Skoðun verktakamanna er sú
að þarna hugsi menn ekki i nógu
viðu samhengi. Verktaki þurfi
alltaf á svo og svo miklu vinnuafli
að halda þar sem verkið fer fram,
jafnvel þótt hann noti að vissu
marki sitt fastráðna starfslið. Ef
menn hugsi um of um að halda
vinnunni fyrir ákveðna hópa
manna i héraði þá sé lika rangt að
farið, þ.e. að þá hugsi menn um
hag þeirra sem vinna við verkið
fremur en þeirra sem greiða fyrir
það og koma til með að njóta
þess.
Gallar
Eitt er það atriði sem veldur
verktökum vissum vandkvæðum i
skipulagningu sinni, en það er
hinn skammi timi sem útboöin
standa yfir á ári hverju. Þegar
fjárlög hafa verið samþykkt síðla
vetrar hefjast forstöðumenn
stofnana handa um að láta hanna
verk sín og bjóða út. Tilboð séu
síðan samin og liggi fyrir að vori
eða snemma sumars. Þá fyrst
komi að framkvæmdum þegar
langt er liðið á sumar. Verktiminn
sé þá stundum naumt skammt-
aður og öll orkan fari í að Ijúka þvi
verki. Síðan fylgi dauður tími i
kjölfarið, allir verktakar hafi verið
uppteknir síðari hluta sumars og
fram á vetur en á fyrstu mánuðum
ársins sé engin verkefni að hafa.
Þessu hafa verktakar reynt að
mæta með því aö semja sérstak-
lega um annað fyrirkomulag. Þeir
þjóði aðilum að vinna verk á
dauðum tima, þ.e. þegar önnur
verkefni eru í lágmarki og þá jafn-
vel geti menn leyft sér að bjóða
mjög lágt. Einnig hafa menn leitað
uppi verkefni, t.d. hafa bygginga-
fyrirtæki orðið sér úti um lóðir og
hafið byggingu og sölu ibúðar-
húsnæðis. I þessu sambandi
vöktu þeir einnig athygli á því aö á
siöari árum eru menn síður háðir
ytri aöstæðum eins og var. Jarð-
vinna getur nú staðið yfir nánast
allt árið, frost í jörð skiptir ekki
miklu máli þegar stórvirk tæki
eiga i hlut og af þessum sökum
þurfi ekki alltaf að hrúga öllum
verkefnum á stutt sumar. Ef verk-
efnum yrði því dreift skipulegar
og meira yfir allt árið mætti gera
ráð fyrir auknum möguleikum og
meiri sveigjanleika.
Verktakar
uggandi um verk-
efni á næstu
misserum
Útlitið
Sumir verktakanna létu í Ijós
nokkurn ugg varðandi verkefni
næstu missera. Ráðamenn hafa
ákveðið að draga nokkuð úr
verklegum framkvæmdum. Verk-
takar henda á að það geti verið
vafasamur sparnaður. Sé þaö
gert að einhverju marki komi til
atvinnuleysis. Verktakar segja
upp fólki sem fái þá atvinnuleys-
isbætur greiddar af rikinu.
Þegar hefur komið til nokkurrar
fækkunar starfsmanna verktaka
þótt ekki kannski beri mikið á at-
vinnuleysi. Fyrirtæki sem hefur
siðustu misseri lengst af haft
kringum 330 starfsmenn hefur nú
um 240 manns i þjónustu sinni.
Þessi fækkun hefur orðið á sið-
ustu fáu mánuðum. Verði þessi
samdráttur staðreynd hafi hann i
för með sér áframhaldandi fækk-
un, tæki standi ónotuð og vegna
minnkandi verkefna verði ekki
hægt að endurnýja þau, sem siö-
an leiði af sér að fyrirtækin séu
illa i stakk búin til að takast á viö
ný verkefni þegar samdráttar-
tímabili Ijúki.
Útflutningur
Möguleikar á útflutningi á verk-
takastarfsemi hafa og verið
skoðaðir. Var það gert með
stuðningi iðnaðarráðuneytisins
að frumkvæði Verktakasam-
bandsins. Ástæður þess að fyrir-
tæki vilja leita á erlendan markað
eru m.a. að auka umsvif, veltu fyr-
irtækisins, afla gjaldeyris, skapa
ný atvinnutækifæri, ná meiri jöfn-
uði i rekstri og nýta betur fram-
leiðslutæki, vinna ný og spenn-
andi verkefni og allt þetta er gert
vegna trausts á hæfileikum og
getu Islendinga til að keppa við
útlendinga.
Þarna eru þó mörg Ijón á vegin-
um. Töldu menn eftirfarandi
helstu galla: Hár tollur á vinnuvél-
um, fjármagnsskortur, smæð fyr-
irtækjanna.skortur á opinberum
stuðningi, skattlagning íslenskra
starfsmanna erlendis, markaðs-
mál, áhugaleysi starfsmanna,,
skortur á samböndum erlendis og
reynsluleysi og/eða hæfileika-
skortur.
Til þess að þarna sé raunhæfur
möguleiki verða fyrirtækin að
hafa yfir að ráða starfsmönnum á
tæknisviði, tungumálasviði og
markaðssviði. Þekking á þessum
sviðum öllum verður að vera fyrir
hendi og þar fyrir utan verða
menn að vera reiðubúnir að þora,
taka einhverja áhættu þegar ný
lönd eru numin. Þar eru menn
kannski sist reiðubúnir og vildu
gjarnan hafa i pokahorninu ein-
hvern stuðning frá hinu opinbera,
t.d. i formi fjárstyrks við tilboðs-
gerð eins og tiðkast hjá sumum
öðrum Norðurlöndum.
fonaftarMafö
áskriftarsímar
82300 og
82302
31