Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1988, Síða 18

Frjáls verslun - 01.08.1988, Síða 18
MYNDLIST selt fyrir 1-2 milljónir á meðan minni spámenn selja e.t.v. lítið sem ekkert. Eðli málsins samkvæmt er enn síður unnt að fullyrða um sölu beint af vinnustofum. Þó er vitað að sú sala er í mörgum tilfellum ekki umfangsminni en sala úr sýningarsölum hjá þeim listamönnum sem eingöngu lifa af list sinni. Svolítill leikur að tölum gæti þó gef- ið einhverja vísbendingu um vægi þessara tveggja söluleiða á markaðn- um. Innan vébanda Sambands ís- lenskra myndlistarmanna eru á milli 160 til 170 málarar og grafíklista- menn. Þetta eru einkum þeir sem hafa myndlistina að aðalatvinnu, en utan þessa hóps standa líklega margir yngri listamenn sem skemmra eru á veg komnir. Ef reiknað er með því að hver ofangreindra félagsmanna hafi því sem næst mánaðarleg lágmarks- laun af list sinni, 30-40 þúsund krónur á mánuði, gæti heildarsala allra fé- lagsmanna á myndlist numið 60-80 milljónum króna á ári. Ef mánaðarleg meðallaun eru nær 50 þúsundum króna losar heildarsalan um 100 millj- ónir króna árlega. ítrekað skal að hér er um hreinan talnaleik að ræða, enda eru ekki til upplýsingar um afkomu myndlistarmanna sem stéttar. Þar eru kjör afar misjöfn eftir því hver á í hlut. GALLERÍ LISTAMANNA I Reykjavík eru nokkur gallerí sem listamenn reka sameiginlega til að koma list sinni á framfæri. Þessi gall- erí eru jafnframt sýningarsalir og byggja afkomu sína reyndar að stærstum hluta á þeirri starfsemi. Óvarlegt er að áætla viðskiptalegt umfang þessa reksturs, enda er það misjafnt. Sum gallerí halda uppi starfsmanni eða jafnvel tveimur á meðan listamenn skiptast á um að annast reksturinn í öðrum. Töluverð hreyfing er á fyrirtækjum af þessu tagi og því að líkindum ekki mjög traustur rekstrargrunnur. Skynsam- legast er hér að líta á þessi viðskipti sem hluta af sölu listamannanna á sýningum og af vinnustofum, þótt einnig sé óvíst um hlutfallslega skipt- ingu þar á milli. UPPB0Ð Þótt opinber uppboð á listaverkum séu að líkindum þau myndlistarvið- skipti sem sýnilegust eru almenningi eru þau einungis brot af heildarmark- aðnum. Hér á landi er það einkum Gallerí Borg sem heldur reglulega listaverkauppboð, þótt nokkrir aðrir hafi til þess tilskilin leyfi. Á slíkum uppboðum er sjaldgæft að stór og dýr málverk séu boðin föl. Þar eru fremur ódýrar myndir og myndir í miðlungs- verðflokki, þótt að vísu geti verið undantekningar frá því. Samkvæmt nýlegum lögum ber að innheimta svonefnt fylgiréttargjald af öllum myndum sem slegnar eru á op- inberu uppboði. Gjaldið nemur 10% og leggst ofan á söluverð verksins. Það rennur til handhafa höfundarrétt- ar, sem er listamaðurinn eða erfingja hans allt að fimmtíu árum eftir lát hans. Ef ríkið er handhafi höfundar- réttar eða enginn getur talist rétthafi rennur gjaldið í sérstakan starfslauna- sjóð myndlistarmanna. Þessi skipan mála er vel þekkt víða í Evrópu, en ísland er fyrst Norðurlandanna til að taka hana upp. Hugmyndin að baki gjaldinu er sú að þegar listaverk skiptir um áhorfanda eða „neytanda" beri höfundinum að njóta þess, enda sé verið að selja hugverk en ekki strigann eða málninguna sem á hon- um er. Innheimta fylgiréttargjalds hófst á þessu ári og hafa um fimm hundruð þúsund krónur skilað sér af fimm upp- boðum. Heildarsala á þessum upp- boðum hefur því verið fimm milljónir króna eða um milljón á hverju uppboði fyrir sig. Skringilegt vandamál hefur komið upp við framkvæmd innheimtu gjalds- ins, sem tengist því þegar eiganda verksins er sjálfum slegið það á upp- boði. Skýring þessa er sú að eigandi verks setur sér yfirleitt lágmarks- verð sem hann vill fá fyrir verkið á uppboði. Um tíma var sá háttur hafð- ur á að ef ekki fékkst slíkt lágmarks- boð í verkið var það dregið út af upp- boðinu án þess að seljast. Þetta þótti hins vegar ekki kurteisi gagnvart þeim sem uppboðið sóttu og buðu í verkið í góðri trú. Því hefur verið gripið til þess ráðs að eigandinn bjóði sjálfur í verkið ef sýnt þykir að það muni seljast á of lágu verði að öðrum kosti. Samkvæmt skilningi laga og reglugerða ber kaupandanum að greiða 10% fylgiréttargjalds og það þótt hann sé sjálfur eigandi þess fyrir „söluna". Þetta hefur eðlilega mælst misvel fyrir og óvíst er þegar þetta er ritað hvernig tekið verður á málinu. EINKAVIÐSKIPTI Síðasta söluleiðin sem hér verður nefnd til sögunnar er viðskipti ein- staklinga og fyrirtækja sín á milli. Eins og gefur að skilja er ekkert hægt að fullyrða um þennan þátt myndlist- arviðskipta. Þar er um að ræða kaup og sölu sem í flestum tilfellum fer ekki lengra en á milli tveggja viðskiptavina og kemur hvergi fram í opinberum gögnum. Nokkuð algengt er að fyrirtæki og stofnanir kaupi málverk beint af ein- staklingum sem bjóða þau til sölu. Yfirleitt fæst hærra verð fyrir mynd- irnar á þennan hátt en fengist væru þær boðnar opinberlega í umboðs- sölu. Það eru einkum bankar og stærri fyrirtæki sem festa kaup á myndum á þennan hátt. Þá ganga myndir kaupum og sölum manna á milli eins og annar varningur, en ómögulegt er að geta sér til um um- fang þeirra viðskipta. KAUPENDUR Þeir, sem til þekkja, eru á einu máli um að kaupendur myndlistar á íslandi séu af öllum stærðum og gerðum. Það færist í vöxt að einstaklingar kaupi myndlist sér til ánægjuauka og hugsanlega einnig með fjárfestingar- viðhorf í huga. Hópar fólks taka sig gjarnan saman og gefa listaverk sem tækifærisgjafir og smærri fýrirtæki hafa sum á sínum snærum „menning- arfulltrúa" sem annast innkaup þess á listaverkum. Nokkur dæmi eru um einstaklinga sem eiga stórt safn listaverka og fylgjast grannt með þeim markaði. Vel þekkt er safn Þorvaldar Skúla- sonar, sem getur að líta á veggjum Hótel Holts og í safni Þorvaldar í Hafnarfirði. Af öðrum mætti nefna nafnana Sverri Sigurðsson og Sverri 18
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.