Frjáls verslun - 01.09.1988, Blaðsíða 15
„Þannig kallaði
hann menn gjarnan
á beinið og las yfir
þeim bæði hátt og
lengi. Orðalagið var
líka annað en ég átti
að venjast og alls
ekki fyrir viðkvæm-
ar sálir.“
„Það er trúnaðarmál."
— Var Landsbanki íslands hafður
með í ráðum við kaupin?
„Landsbankinn fékk ekkert um
málið að vita fyrr en bindandi kaup-
samningar voru komnir á.“
— Hver voru viðbrögð bankans?
„Eg hygg að kaupin hafi komið
bankastjóm Landsbankans, eins og
reyndar flestum öðrum, verulega á
óvart. Reyndar má segja að kaupin
hafi í þessu tilliti verið glæfraleg
vegna þess að Olís var á þessum
tíma, eins og fram hefur komið í frétt-
um, í verulegum vanskilum gagnvart
Landsbankanum og Landsbankinn af
þeim sökum í aðstöðu til að stöðva
rekstur félagsins. Óli Kr. var hins
vegar tilbúinn að taka áhættuna.
Hann spilaði óneitanlega djarft í þessu
máli en vogun vinnur vogun tapar.“
— Hvernig tók bankinn nýja eig-
andanum?
„Eðlilega ineð ákveðnum fyrir-
vara. Memi verða að hafa í huga að Óli
Kr. var svotil óþekktur í Landsbank-
anum á þessum tíma. Hins vegar var
á það lögð megináhersla frá byrjun að
greiða skuldir Olís við Landsbankann
niður og grípa til annarra þeirra ráð-
stafana í málefnum félagsins sem
bankinn hafði lengi barist fyrir. Þess-
ar aðgerðir voru til þess fallnar að
vekja réttmætt traust í Landsbankan-
um.“
— í fréttum hefur
komið fram að
Landsbankinn og
Oh's hafi gert
samning sín á
milli á síðasta
ári sem bankinn
telur nú að hafi
verið vanefndur.
Hvers efnis var
þetta samkomulag?
„Það er trúnaðar-
mál.“
— Hverjar eru vanefndirnar að
mati bankans?
„Það er trúnaðarmál."
— Hvemig er Óli Kr. Sigurðsson í
samstarfi?
„Hann er mjög sérstakur persónu-
leiki. Það er alls ekki við hæfi að fara
langt út í þá sálma en þó má nefna að
Óli Kr. er firna duglegur og býr yfir
miklum kjarki. Þetta tvennt verður
ekki frá honum tekið. Mér er hins
vegar engin launung á því að hann er
um margt mjög erfiður í samstarfi og
einráður. Það er alþekkt."
— Hvemig var aðkoman að mál-
efnum Oh's um áramótin ’86-
’87?
„Aðkoman var satt
best að segja með
miklum ólíkind-
um. Kostnaðar-
eftirlit var allt í
molum, útlána-
kerfi félagsins
virtist stjómlaust
og innheimtan óv-
irk. Aðferðir Óla Kr.
við þessar aðstæður voru
um margt óvenjulegar en skil-
uðu að mínu mati árangri. Innheimtu-
aðferðir hans voru t.d. frumlegar en
að mörgu leyti árangursríkar. Þannig
kallaði hann menn gjaman á beinið og
las yfir þeim bæði hátt og lengi. Orða-
valið var hka annað en ég átti að venj-
ast úr mínu starfi og alls ekki fyrir
viðkvæmar sálir.“
— Hvemig stóð á því að Jón Atli
Kristjánsson var ráðinn til félagsins?
, Jón Ath þótti mjög fysilegur kost-
ur sem forstjóri. „01ís-memi“ höfðu
kynnst honum í samningum við
Landsbankann en í þeim var hann full-
trúi bankans. Jón Atli kom fyrir sjónir
sem mjög nákvæmur fagmaður og
fastur fyrir í samningum. Hann hafði
einnig í störfum sínum fyrir Lands-
bankann aflað sér mikillar reynslu af
málefnum útgerðarimiar.“
— Hvemig stóð á brottför Jóns
Atla?
„Ætlunin með ráðningu Jóns Atla
var að Óli Kr. drægi sig í hlé frá dag-
legri stjómun fyrirtækisins. Mál þró-
uðust hins vegar með þeim hætti að
Óli Kr. gat ekki shtið sig frá Oh's og í
reynd fékk Jón Atli ekki að gegna því
starfi, sem hann hafði verið ráðinn til,
nema fáa daga. Mitt mat er að Óli Kr.
hafi gert mikil og afdrifarík mistök
með því að víkja Jóni Atla úr forstjóra-
starfinu. Óli Kr. taldi sig hins vegar
ekki eiga annarra kosta völ og hans
vilji hlaut að ráða í þessu efni. “
— Úrsögn þín úr stjóm Oh's hefur
orðið fréttaefni og eins bréf Lands-
bankans til þín frá 21. október sem Óli
Aðkoman varsatt best
að segja með miklum
ólíkindum. Kostnaðareftirlit
var allt í molum, útlánakerfi
félagsins virtist stjórnlaust og
innheimtan óvirk.
15