Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1989, Síða 20

Frjáls verslun - 01.08.1989, Síða 20
FORSIÐUGREIN 755 milljónir króna á síðasta reikningsári. Þar af komu um 30% til baka í formi hreinna tekna til þeirra aðila sem standa að fyrir- tækinu, eða um 225 milljónir króna. Lottóið ber ennþá ægis- hjálm yfir ís- lenskar Getra- unir því að sögn Hákons Gunnars- sonar framkvæmd- astjóra nam velta getraunanna á síðasta reikningsári 160 milljónum króna og hagnaður fyrirtækisins varð um 30 milljónir. Sala skafiniða hjá Lukkutríói Björg- unarsveitanna og Slysavamafélags íslands nam um 200 milljónum króna á síðasta ári og hagnaður af sölunni varð um 50 milljónir. Varðandi Fjarka Skáksambandsins og HSÍ vom seldir miðar á fyrsta starfsárinu, þ.e. 1988, sem svöruðu til um 60 milljóna króna. Ekki er að finna upplýsingar um önnur skafmiðahappdrætti en sam- kvæmt upplýsingum Fijálsrar versl- unar var dræm sala á Ferðaþristi Ungmennafélags Ölfuss síðustu mán- uðina og sama er að segja um sölu á Bflaþrennu SÁÁ meðan hún var og hét. MILUARÐUR í SPILAKASSA En það er meira blóð í kúnni. Það vekur athygli þegar opinberar hagtöl- ur eru skoðaðar að þegar reynt er að meta eyðslu landsmanna er ekki tekið inn í reikninginn það sem við eyðum í söfnunarkassa Rauða kross íslands. Þetta er þeim mun sér- kennilegra þegar í ljós kemur að kassamir veltu um milljarði króna á síðasta ári og hagnaður fyrirtækisins af þessari íjáröflun nam 152 milljónum króna á árinu 1988. Hannes Hauksson hjá Rauða krossinum sagði aðila á þeim bæ hafa áttað sig á því fyrir löngu að hinn hefðbundni happdrætt- ismarkaður væri mettaður og því hefði verið nauðsynlegt að finna ein- hverja leið til öflunar fjár, sem aðrir hefðu ekki farið. Því hefði fengist leyfi hjá ráðherra árið 1972 til að staðsetja söfnunarkassa víða um land og væri þessi fjáröflun skilgreind sem happ- drætti. í dag er Rauði kross íslands með 195 kassa í gangi um land allt og þeir skila lflmarstarfinu umtalsverðum ijármunum. Rauði krossinn hefur ekki staðið fyrir happdrættum síð- ustu árin þótt einstakar deildir hans hafi ráðist í skafmiðahappdrætti, t.d. Reykjavíkurdeildin árið 1987. Hannes sagði það greinilegt að þrátt fyrir sérstöðu söfnunarkass- anna væri því ekki að neita að inn- streymið hefði hægt verulega á sér á Jóhannes L.L. Helgason framkvæmdastjóri HHÍ við tromluna góðu sem notuð var til að draga út vinninga áður en nútíma tölvutækni tók við. Rauði kross íslands hefur einkaleyfi, samkvæmt heimild ráðherra frá 1972, til að reka spilakassa í versl- unum og spilasölum. Talsmenn RKÍ telja að um 1 milljarður króna hafi komið í kassana á síðasta ári og að 850 milljónir hafi verið greiddar í vinninga. HAPPAÞRENNA HÁSKÓLANS alveg MILLJÓN 20

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.