Frjáls verslun - 01.08.1989, Page 23
FORSÍDUGREIN
AUKAVMNlNCiJtt
RAUDI KROS8 ISLANDS
RBQLUR;
T I iT 1
- iT
V L-*"''"' 1—X X t • J
■: 1’ f ■' f 1
J ' ■ ■ ý ; .. t' 1
> > • t *+■ — * 1
> > > — • — * . I
' j Jfr '■ 1
Spilakassar Rauða kross íslands veltu um milljarði króna í fyrra. Þeir eru
reknir samkvæmt sérstakri ákvörðun ráðherra frá árinu 1972. Hvergi er
minnst á þá í lögum en þeir eru skilgreindir sem happdrætti.
fengið að slást um sömu bitana og
afleiðingin er verulegt tekjutap þeirra
samtaka í landinu sem um langt árabil
hafa treyst á þessa fjáröflun og enga
aðra. Til dæmis að taka má nefna, að
eins og fram kom áður, var hagnaður
Happdrættis DAS aðeins 7-8 milljónir
króna á síðasta ári. Má DAS örugg-
lega muna sinn fífil fegurri.
Þá kom fram í samtali við Ólaf Jó-
hannesson hjá SÍBS að með tilkomu
skafmiða og lottós hefði orðið 10-15%
samdráttur í tekjum happdrættisins
og munar um minna. Þórarinn Sig-
urðsson hjá Sjálfsbjörg kvað alvarlegt
ástand framundan hjá þeim ef ekki
rættist úr og taldi hann að í síðasta
happdrætti hefðu einungis selst
21.000 miðar af þeim 120.000 sem
gefnir voru út. Það þýðir einungis
18% sölu og sér hver maður að ekki
er að vænta mikils hagnaðar af slíku.
Flestir viðmælenda blaðsins töldu
þróunina verða þá að úr skafmiða-
happdrættum myndi draga á næstu
misserum. Það mun vera í allgóðu
samræmi við það sem gerst hefur
víða erlendis. Hins vegar er erfitt að
bera saman íslenskan happdrættis-
markað við lönd utan Norðurland-
anna, því t.d. í Bandaríkjunum er
aðeins brot af markaðnum fólgið í
þeim happdrættum sem við þekkjum.
Nýjar tölur úr því landi sýna að
Bandaríkjamenn veltu um 240 millj-
örðum dollara í spilavítum og öðrum
áhættuleikjum á síðasta ári og veitir
ekld af því þessi fjáröflunarleið stend-
ur undir opinberum rekstri fylkjanna
að verulegu leyti.
Og hvað er þá framundan? Við
skulum láta Jóhannes L.L. Helgason
hjá Happdrætti Háskóla Islands svara
því, en hans fyrirtæki velti mestum
íjármunum á happdrættismarkaðnum
á síðasta ári:
„Ég hef trú á því að skyndi- og
skafmiðahappdrættum eigi eftir að
fækka á næstu árum en að öðru leyti
verði almenn happdrætti áfram í
blóma hér á landi eins og annars stað-
ar. Spilafíknin hefur ávallt fylgt mann-
inum og hún mun gera það áfram“.
Við skulum vona að lukkuhjólið
haldi áfram að snúast enn um sinn en
jafnframt að það gagnist þeim sem
ýttu því af stað í öndverðu.
w
Islenskar
Tölvubækur
Tölvureiknirinn
Excel
Fyrir Macintosh
Fyrir IBM
samhæfðar
Fjölnotaforritið
Works
Fyrir Macintosh
Fyrir IBM
samhæfðar
HyperCard
Vandaðar íslenskar
bækur um öll helstu
forritin
Útbúum kennslu og
leiðbeiningarrit fyrir
forrit og annað
tölvutengt efni
sími 3 60 73
Fræðslu og kennsluefni
um og fyrir tölvur
23