Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1992, Blaðsíða 8

Frjáls verslun - 01.01.1992, Blaðsíða 8
SAMGONGUR Nú hefur nýlega verið stofnað und- irbúningsfélag til að ráðast í könnun á hagkvæmni þess að ráðast sem fyrst í tvöföldun Reykjanesbrautar frá Krísuvíkurvegi að Fitjum í Njarðvík. Að þessu félagi standa fyrst og fremst Verktakasamband íslands, Atvinnu- þróunarfélag Suðurnesja og Lands- bréf hf. Eins og kunnugt er hefur hug- myndin um þetta mál verið kynnt op- inberlega en í ljós hefur komið að stjórnmálamenn eru mishrifnir af þessu tiltæki. Það, sem vegur þyngst, eru tiltölulega neikvæð við- brögð Halldórs Blöndal samgöngu- ráðherra við hugmyndinni og gerir hann grein fyrir sinni afstöðu í viðtali í þessu tölublaði Frjálsrar verslunar. Ólafur G. Einarsson, menntamála- ráðherra og fyrsti þingmaður Reykn- esinga, er á sama máli og samgöngu- ráðherra en hins vegar hafa bæði Steingrímur Hermannsson, formaður Framsóknarflokksins, og Ólafur Ragnar Grímsson, formaður Alþýðu- bandalagsins, lýst sig fylgjandi hug- myndinni. En hvers vegna líta menn til þessa kosts einmitt nú? NflESTU ALDAR BEÐIÐ? Allir þeir, sem koma til og frá land- inu með flugi, aka um Reykjanes- brautina. Að auki er hún eina veg- tengingin milli höfuðborgarsvæðisins og Suðurnesja. Umsvif varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli skapa talsverða umferð um brautina og verði af bygg- ingu álvers á Keilisnesi mun hún auk- ast verulega. Skýrslur sýna að Reykjanesbraut er einn hættulegasti vegur landsins. Þar hefur orðið fjöldi slysa á liðnum árum enda umferð gífurleg. Og þótt „Skýrslur sýna að Reykjanesbraut er einn hættulegasti vegur landsins. Þar hefur orðið fjöldi slysa á liðnum árum enda umferð gífurleg. Og þótt álíka margir bílar fari um Suðurlandsveg, er slysatíðni á Reykjanesbraut um 80% meiri.“ álíka margir bílar fari um Suðurlands- veg er slysatíðni á Reykjanesbraut um 80% meiri. Meiðsl í slysum á þessari braut eru einnig rnjög tíð, einkum þegar bílar aka út af. Sér- fræðingar eru sammála um að tvö- földun Reykjanesbrautar væri áhrifa- ríkasta ráðið til að fækka þar slysum. Spár Vegagerðarinnar um þróun umferðar á Reykjanesbraut sýna að hún mun mjög aukast á næstu árum. Nú aka um 5000 bílar á sólarhring um brautina á milli Krísuvíkurvegar og Njarðvíkur. Með auknum ferðalögum til útlanda, fólksflölgun á Suðurnesj- um og nýrri stóriðju á svæðinu er talið að umferðin á þessum kafla muni tvö- faldast á næstu 20 árum. Af þessum sökum telur Vegagerð- in ljóst að innan 10-15 ára verði tvö- földun að hafa átt sér stað en að þeirri framkvæmd megi seinka um 5 ár til viðbótar ef ráðist verði í sértækar aðgerðir, svo sem að lýsa öll helstu gatnamót, gera framúrakstursreinar með reglulegu millibili, setja upp betri leiðarmerki við öll gatnamót og klæða axlir með slitlagi í fullri breidd. VEGGJALD í 25 ÁR Undirbúningsfélagið sem nú hefur verið stofnað, telur ekki við það un- andi að bíða eftir þessum samgöngu- bótum í svo langan tíma eða allt fram á næstu öld. Forgöngumenn félagsins telja sig verða vara við mikinn áhuga almennings á þessari framkvæmd og að ekki sé verjandi að skella skolla- eyrum við kröfum um úrbætur. En menn gera sér einnig grein fyrir brýn- um verkefnum í vegamálum annars staðar á landinu og að fjármagn til þess málaflokks er af skornum skammti. Því vilja menn fá heimild til að kanna áhuga á annars konar fjár- mögnun en hingað til hefur tíðkast. Önnur ástæða fyrir áhuga manna á þessari leið varðandi tvöföldun Reykjanesbrautar er sú kreppa sem íslenskur verktakaiðnaður er í. Tæki liggja vannýtt og atvinnuleysi að skapast í greininni. Um leið telja fjár- málamenn að hér á landi sé að fmna aðila sem vilji fjármagna slíka fram- kvæmd af þeirri einföldu ástæðu að hún sé fjárhagslega hagkvæm. Um leið myndi þessi aðferð tryggja að meira fé úr ríkissjóði væri til skipt- anna á öðrum sviðum vegamála. I fyrsta áfanga er reiknað með að ýmsar rannsóknir fari fram svo og tæknilegur undirbúningur, m.a. hönnun vegarins, kostnaðarútreikn- 42

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.