Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1992, Blaðsíða 12

Frjáls verslun - 01.01.1992, Blaðsíða 12
UTLOND SflGAN AF FALLIBCCIBANKANS: STÓRA BANKAHNEYKSLIÐ Hvar er hægt að koma mörg- um minni hneykslismálum fyrir í einu stóru? Sagan af falli Bank of Commerce and Credit Int- ernational (BCCI) er líklega um- fangsmesta fjármálahneyksli aldarinnar og teygir anga sína til hátt í eitt hundrað landa. I Bandaríkjunum hefur almenn- ingur nánast gefist upp á að fylgjast með málinu, enda eru angar þess svo langir og pers- ónurnar með slíkum ólíkindum að engum skáldsagnahöfundi hefði tekist að setja það saman. Hér er stutt yfirlit yfir BCCI- málið eins og það snýr að banda- rískum viðskiptum og stjórn- málum. Það er rétt að byrja á að rifja upp hvers konar fyrirbæri BCCI var og er. Bankinn var stofnaður árið 1972 í Pakistan. Stofnandi og aðaleigandi var Agha Hasan Abedi, Pakistani sem átti sér þann draum að stofna þriðja heims banka sem stæði vestrænum íjármálastofnunum ekki að baki. Hann naut velvildar stjórnvalda víðs vegar í Suður-Asíu og tók fljótlega upp veru- leg viðskipti við auðuga Mið-Austur- landabúa, olíufursta sem aðra. Áður en yfir lauk var BCCI með útibú í 73 löndum og átti auk þess banka hér og hvar, m.a. í Bandaríkjunum. EKKIVENJULEGUR BANKI En BCCI var aldrei neinn venjuleg- ur banki. Umsvifin voru mikil og vöxt- urinn ör en eigendur hans og stjórn- endur virtust lítið kunna fyrir sér í bankaviðskiptum og létu fjárhagslega „heilsu“ bankans iðulega víkja fyrir pólitískum og persónulegum hags- munum sínum. í reynd varð BCCI eins konar sparibaukur fyrir fáa ein- staklinga og fyrirtæki og sérhæfði sig TEXTI: KARL BIRGISSON 46 í viðskiptum við spillta harðstjóra og alþjóðlega glæpahringi. Seðlabanki Englands leiðir getum að því að bank- inn hafi aldrei skilað hagnaði og heild- artap af rekstri hans getur numið allt að 15 milljörðum Bandaríkjadala. Meðal viðskiptavina bankans voru eiturlyfjasalar frá Asíu og Suður-Am- eríku, hryðjuverkasamtök Palestínu- manna, ríkisstjórnir Pakistan, Saudi Arabíu og flestra furstadæmanna við Persaflóann, harðstjórar á borð við Manuel Noriega, vopnasalar af ýms- um þjóðernum og leyniþjónustur Bandaríkjanna, Bretlands, Saudi Ara- bíu og Pakistan, svo nokkur dæmi séu tekin. Að auki var sérstök 1.500 manna deild undir stjórn bankans, svokölluð Black Network, sem ann- aðist mútugreiðslur, ijárkúganir, mannrán og jafnvel morð. Svona aukreitis við bankasvindlið stofnaði Abedi ásamt öðrum árið 1979 Third World Foundation, samtök sem veittu fé til heilsugæslu og menntunar í fátækum löndum og höfðu margs konar önnur áhrif til hins góða í þriðja heiminum. í gegnum þessi samtök og aðra góðgerðarstarf- semi tókst Abedi einnig að rækta sambönd við kunna vestræna stjórn- málamenn á borð við Jimmy Carter og James Callaghan. LÍTILL BANKI í GEORGÍU Upphaf umsvifa BCCI í Bandaríkj- unum má rekja til ársins 1977. Fyrsti fjárlaga- og hagsýslustjóri Jimmy Car- ters, Bert Lance, hafði neyðst til að segja af sér embætti vegna ólöglegra bankaviðskipta sinna í Georgíu, þar sem hann átti bankann National Bank of Georgia. Lance var í fjárhags- kröggum á þessum tíma en Abedi, eigandi BCCI, sá sér leik á borði og réð hann sem ráðgjafa í alþjóðabanka- viðskiptum hjá BCCI. Abedi kynnti Lance fyrir saudi-arabískum kaup- sýslumanni, Ghaith Pharaon. Þeir höfðu ekki þekkst lengi þegar Phara- on bauðst til að kaupa National Bank of Georgia af Lance á 22 milljónir dala. Lance tók boðinu feginshendi, en Pharaon var í þessu tilviki sem öðrum síðar einungis nafn sem BCCI notaði til að koma sér fyrir í banda- rísku fjármálalífi. STÓR BANKI í WASHINGTON Næst sneri BCCI sér að banka í höfuðborginni Washington og reyndi að festa kaup á First American Bank of Washington. Til þess þurfti leyfi bandaríska Seðlabankans en BCCI beitti fyrir sig sjö einstaklingum sem

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.