Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1992, Blaðsíða 21

Frjáls verslun - 01.01.1992, Blaðsíða 21
Höfuðstöðvar Q8 í Danmörku eru í Virum fyrir norðan Kaupmannahöfn. keppnin aukist svo mikið að nú er næstum hægt að tala um að hún sé blóðug. í fyrsta lagi hefur notkun fjar- hitunar til íbúðarhúsa aukist gríðar- lega og framboð á olíu vaxið mikið á meðan. Svarið við því hefur verið að þjóna þeim betur sem eru og auka framboðið á olíu- og bensínvörum, s.s. blýlausu bensíni, léttri dísilolíu o.s.frv. Þá hafa kröfur til olíufélaga vegna umhverfismála aukist mikið og talsvert verið lagt í að hreinsa upp gamlar syndir. Danir eru mjög framarlega í um- hverfisvemd og það eru strangar reglur í gildi hér varðandi þau mál. Það er öruggt að þetta verður mikil- vægasta verkefnið, sem við þurfum að glíma við á næstu árum í öllum hinum vestræna heimi, að ég tali nú ekki um A-Evrópu sem er verr farin en menn halda almennt. Q8 hefur verið leiðandi í þróun á tilraunum með bíó-tekníska hreinsun á jarðefnum við bensínstöðvar sem lofa góðu. Segja má að Q8 leitist við að vera góður granni. Varðandi yfirtöku nýrra orkugjafa er það svo að ákveðin notkun á olíu er þannig að erfitt er1 að finna stað- kvæmdarvöru, t.d. ífluginu. Talið er að bensínsala aukist um 1% á ári á næstu 10 árum og flutningar á landi aukist gífurlega. Við fylgjumst vel með nýjungunum á þessu sviði enda skiptir þetta framtíð fyrirtækisins höfuðmáli." SPURNING UM SKIPULAGNINGU Hvernig líst þér á ástandið á ís- lenskum olíumarkaði? „Þótt ég hafi mikið samband við ísland þá hef ég ekki svo mikla skoð- un á honum. Þó er alveg ljóst að með forstjóraskiptum hjá Shell og Esso auk allra þeirra samfélagsbreytinga í heiminum, sem snerta þennan mark- að, þá munu eiga sér stað talsverðar breytingar frá því sem við þekkjum. Annarsvegar er það hvort gefa eigi viðskipti með öllu frjáls, sem nú verð- ur eflaust ofan á, og hinsvegar spurn- ingin um mengunarþáttinn en mig grunar að við íslendingar höfum alls ekki hugað að þeim þætti nægilega vel. Síðan er það spurning hvaða stefnu olíufélögin ætla að taka — vilji þau hafa bein áhrif á samfélagið — og hvaða siðferðilegu skyldur þau telja sig hafa. Þama koma inn sérstakar KUWAIT PETROLEUM DANMARK A/S Dótturfyrirtæki Kuwait Petroleum International og heyrir undir móð- urfyrirtækið sem hefur aðsetur í London. VELTA: Um 100 milljarðar íkr. STARFSMENN: 4000, þar af 1700 fastir. FJÖLDI BENSÍNSTÖÐVA: Rúmlega 600. MARKAÐSHLUTDEILD: 20% (su mesta í Danmörku). STJÓRNARFORMAÐUR: Nader H. Sultan. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Bo Gjetting. Margrét Guðmundsdóttir situr bæði í framkvæmdastjórn og stjórn fyrirtækisins. Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í Virum fyrir norðan Kaupmanna- höfn. íslenskar aðstæður, s.s. tillit til dreif- býlis, smæð þjóðfélagsins o.s.frv. Allavega verður spennandi að fylgjast með þessari þróun. Ég mun örugg- lega koma til með að gera það.“ Það er bankað á hurðina og Mar- grét biðst afsökunar og segist verða að sinna þessu verkefni. Danskan hennar er lýtalaus og það er ekki oft sem maður verður vitni að svona hárfínum línudansi, ákveðni og kurt- eisi. Samtalið er stutt en vandamálið er leyst. Að lokum Margrét. Það sést á skreytingum og myndum hér á skrif- stofunni að þú átt 2 börn. Hvernig er hægt að sameina umönnun fjölskyld- unnar og svona krefjandi starf? „Þetta er spurning um skipulagn- ingu. Við Lúðvíg erum bæði í erfiðu starfi og þetta væri vonlaust ef ekki væri unnið eftir nokkuð stífu plani. Ef það koma upp vandamál þá verður hreinlega að leysa þau,“ bætir Mar- grét við og brosir. Hefurðu einhver ráð til kvenfólks sem treystir sér ekki út í ábyrgðar- stöður vegna heimilisaðstæðna. „Minn boðskapur á mun meira er- indi til þeirra ungu kvenna sem fljót- lega koma út á vinnumarkaðinn. Berj- ist fyrir betri dagvistunarmöguleikum og einsetnum skólum, því ef maður er öruggur með börnin sín þá eru tæki- færin mörg og mest undir manni sjálf- um komið hversu langt maður nær.“ 55

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.