Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1992, Blaðsíða 32

Frjáls verslun - 01.01.1992, Blaðsíða 32
BREF FRA UTGEFANDA HIÐ OPINBERAI SAMKEPPNIVIÐ EINKAREKSTURINN Að undanförnu hefur sala á eigum og rekstri Skipaútgerðar ríkisins töluvert verið í sviðsljósinu. Skipaútgerðin er eitt af þeim nátttröllum ríkis- rekstrarins sem hefur verið þungt á fóðrum og tími til kominn að dagi uppi. Rekstri fyrirtækisins hefur verið haldið gangandi með framlögum úr ríkissjóði ár eftir ár og hefur þar ekki verið um neinar smá- upphæðir að ræða. Þótt ýmislegt hafi verið gert til þess að hagræða í rekstri fyrirtækisins og árangur náðst á því sviði hefur það engan veginn nægt til og það bendir óneitanlega til þess að rekstrargrund- völlur sé ekki fyrir hendi. En áfram hefur þó verið haldið í skjóli þess að þjónusta fyrirtækisins við hinar dreifðu byggðir landsins sé nauðsyn. Nú verð- ur mjög spennandi að fylgjast með því hvort sú þjón- usta eigi nokkuð eftir að versna þótt annar aðili taki við rekstri fyrirtækisins. Eitt af fyrirheitunum þegar núverandi ríkisstjórn var mynduð var að dregið yrði úr ríkisrekstri og að ríkisfyrirtæki yrðu seld. Ráðherrar Sjálfstæðis- flokksins fóru til að mynda inn í ríkisstjórnina með það veganesti frá landsfundi flokks síns að a.m.k. hluti rekstrar Ríkisútvarpsins yrði seldur. Til þessa hefur ekki borið mikið á aðgerðum stjórnarinnar til þess að efna fyrirheitin en vel má vera að það orsak- ist fremur af því að önnur verkefni hafa verið ærin en af því að viljann skorti. Dæmið um Skipaútgerð ríkisins ætti þó að renna stoðum undir frekari að- gerðir á þessum vettvangi. Það mætti nefna fjölmörg dæmi um ríkisrekin fyrirtæki sem ætla má að væru jafn vel eða betur komin hjá einkaaðilum. Gildir þar einu þótt fyrir- tækin skili ríkissjóði einhverjum arði beint eða óbeint. Engin ástæða er til þess að ætla að tekjur ríkissjóðs af þessum rekstri myndu minnka þótt fyrirtækin yrðu seld. Má nefna sem dæmi Póst og síma, Ríkisútvarpið, Vegagerð ríkisins og Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins. Það er til að mynda al- kunna hversu það fjármagn, sem varið er til vega- gerðar, hefur nýst betur eftir að Vegagerð ríkisins fór að bjóða einstök verkefni út. Það sætir raunar furðu hve skammt er síðan að sú stefna var tekin upp hjá þeirri stofnun. Ætla má líka að unnt væri að flýta verulega fyrir ákveðnum framkvæmdum, t.d. í vegagerð og samgöngumálum, fengju einkaaðilar tækifæri til þess að ráðast í framkvæmdir á eigin spýtur og innheimta síðan gjald fyrir þjónustu sína. Dæmi um slíkar framkvæmdir gætu verið bæði Hvalfj arðargöng og tvöföldun Reykjanesbrautar sem hvoru tveggja eru mjög hagkvæmar og arðgef- andi framkvæmdir. En það er ekki bara ríkisvaldið sem vasast of mikið í rekstri. Þáttur sveitarfélaga í þessum efnum hefur farið sívaxandi á undanförnum árum og sum stærri sveitarfélögin eru að verða stærstu atvinnu- rekendur á landinu. Það voru orð í tíma töluð hjá Júlíusi Hafstein, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks- ins í Reykjavík, þegar hann kvað upp úr um það á dögunum að tími væri kominn til þess að Reykjavík- urborg stigi á bremsurnar í þessum efnum. Það er má til dæmis segja að það sé algjörlega óeðlilegt að Reykjavíkurborg sé með viðamikinn veitingahúsa- rekstur í harðri samkeppni við einkaaðila á mark- aðnum. Má benda á viðtöl sem Frjáls verslun átti við þá feðga Þorvald Guðmundsson og Skúla Þor- valdsson og birtist í síðasta blaði en þar kom glögg- lega fram hversu ójafn leikurinn getur orðið þegar opinberir aðilar eru í samkeppni við einkaaðila. Það, sem þar er sagt, á í raun við fjölmargt annað þar sem hið opinbera er beinlínis að keppa við einkareksturinn. 66

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.