Frjáls verslun - 01.10.1993, Blaðsíða 15
FRETTIR
Bækur Fróða eru á sama verði í fyrra þrátt fyrir álagningu
virðisaukaskatts og auglýsingar í sjónvarpi.
viðtöl sín og þætti um fólk
sem ekki hefur bundið
bagga sína nákvæmlega
sömu hnútum og sam-
ferðamennirnir. I bókinni
fjallar Ómar um fjöl-
skrúðugt mannlíf í
Langadal í Húnavatns-
sýslu í byrjun sjötta ára-
tugarins og þó sérstak-
lega um konu að nafni
Margrét Sigurðardóttir,
sem kölluð var Manga
með svartan vanga. Hún
þótti ljót sem norn og
gekk á miðjum þjóðvegin-
um í Langadal og lét sig
umferðina engu skipta.
NBA - ÞEIR BESTU
Bandaríski körfubolt-
inn, er hálfgert æði á Is-
landi um þessar mundir.
Hvert mannsbarn þekkir
skærustu stjörnurnar í
NBA. f bókinni er fjallað
um öll liðin í NBA-deild-
inni, ferill þeirra rakinn,
sagt er frá liðskipan og
frægum köppum sem hafa
leikið með liðunum. Bók-
in er eftir Eggert Þór Að-
alsteinsson. Hann er
aðeins er 17 ára en hefur
samt ótrúlega mikla
þekkingu á bandarískum
körfuknattleik.
SPENNANDI
SPURNINGAKEPPNI
Spennandi spurninga-
keppni er eftir Guðjón
Inga Eiríksson. Bókin
hefur að geyma 550
spurningar og svör um
ýmislegt efni og er einkar
handhæg ef fólk, ungt
sem eldra, vill reyna með
sér í spurningaleik.
LEIKSYSTUR OG
LABBAKÚTAR
Barnabókin Leiksystur
og labbakútar er eftir
Helgu Möller. Þetta er
önnur bók hennar en í
fyrra kom út bókin Punt-
rófur og pottormar og
hlaut sú bók mjög góðar
viðtökur.
HELNAUÐ
Helnauð er eftir Eirík
S. Eiríksson blaðamann.
f bókinni er sagt frá eftir-
minnilegum hrakningum
og frækilegum björgunar-
afrekum við strendur ís-
lands.
REKSTRARFRÆÐINGAR
STOFNA MEÐ SÉR FÉLAG
Rekstrar- og iðnrekstr-
arfræðingar stofnuðu
nýtt fagfélag laugardag-
inn 30. október síðastlið-
inn. Stofnfundurinn var
haldinn á Hótel Höfða í
Reykjavík.
Aðilar að félaginu geta
allir orðið sem útskrifast
með tveggja ára háskóla-
próf í rekstrar og -iðn-
rekstrarfræðum frá Sam-
vinnuháskólanum á Bif-
röst, Tækniskóla íslands
og Háskólanum á Akur-
eyri.
Á undanförnum árum
hafa útskrifast á sjötta
hundrað nemendur og því
þótti orðin þörf fyrir sam-
eiginlegt fagfélag.
Tilgangur félagsins er
meðal annars að kynna
menntun rekstrar- og
iðnrekstrarfræðinga og
gangast fyrir endur-
menntun.
Fyrsta stjórn Félags rekstrar- og iðnrekstrarfræðinga. Talið
frá vinstri: Þórdís Leifsdóttir, Unnar Jónsson, formaður kynn-
inganefndar, Gunnar Óskarsson gjaldkeri, Bjarni Sv.
Guðinundsson, forntaður nefndar unt endurmenntun, Haukur
Jónsson ritari og Svava Loftsdóttir formaður.
föoniaksstofa.
Góð ákrif!
Barónsstíg 1la • 101 Reykjavík
Símar: 19555 - 19344 • Fax: 29585
15
VALA ÓLA