Frjáls verslun - 01.10.1993, Blaðsíða 40
BARIST UM BANNIÐ
...Þegar einn ungur maður tók sig til uppúr miðri öldinni og samdi áskorun
til sveitunga sinna um að ganga í bindindi uppskar hann mikinn hlátur.
Þegar svo bindindisskjalið hafði gengið um sveitina og kom aftur til
útgefandans hafði aðeins eitt nafn bæst á það: Strútur Snatason,
smalahundur...
... Vínið er langmikilvirkasta aflið sem nú starfar í heiminum, um að
spilla manneðlinu og ala upp í mönnum hverskonar óeðlilegar, ónáttúrlegar
og viðbjóðslegar fýsnir og losta.
...Mettun eintómra holdlegra tilhneigínga mínkar ár frá ári, og þe'r sem
ekki hugsa um annað, eru lítils metnir hjá siðuðum þjóðum. Stór félög hafa nú
í ímsum löndum afsvarið brennivín og þessháttar drikki, og tekist að halda
það...
HAFÐU ÞETTA OG HANANÚ!
...Er mönnum vorkunnarlaust að sjá af riti þessu, hvernig hinn harðblásni,
pólitíski vindbelgur lítur út í raun og veru, þegar af honum er núin
forgylling sú, er smjaður og lofvella spilltrar og smekklausrar blaðamensku
hafa á hann sett.
LÆKNABRENNIVÍNIÐ
...Menn höfðu ýmsar athafnir uppi við að fá lækna til að skrifa upp á recept
fyrir sig. Flestir munu hafa búið sér til einhverja veiki sem þeir vissu að
læknar mundu láta þá fá vín við en aðrir höfðu frumlegri aðferðir uppi.
Guðmundur Magnússon var einn þeirra lækna sem sjaldan gaf út
áfengislyfseðla.Þó kom fyrir að hann lét Dr. Jón Þorkelsson hafa einn slíkan.
Jón hafði þá þann háttinn á að senda vinnustúlku sína til Guðmundar með vísu
að launum. Ein var svona:
Seggur, bjarga sálu þinni
sendu líkn með griðkonunni.
Aldrei fer ég yfir strikið
- óhætt er að láta mikið...
KNÆPUR OG ÖLKRÁR
...Þetta er ósómi og vanvirða þjóð vorri og hún á aldrei að láta það líðast,
að nokkrir miður séðar útlendingS'rolur, sem hér eiga heima, skuli reka
slíkann ósóma á henar kostnað ...
BRUGGIÐ OG B/