Frjáls verslun - 01.04.1994, Blaðsíða 8
FRETTIR
SPURNINGAR VEGNA100
STÆRSTU Á LEIÐINNI
Þeir safna ðllum upplýsingum vegna listans um 100 STÆRSTU, Jón Otti Jónsson viðskipta-
fræðinemi og Birgir Sigfússon viðskiptafræðingur.
Undirbúningur hins ár-
lega lista Frjálsrar versl-
unar yfir stærstu fyrir-
tæki landins, 100
STÆRSTU, er hafinn.
Spurningar eru á leiðinni
í pósti til á annað þúsund
fyrirtækja víðs vegar um
landið. Fulltrúar blaðsins
við gerð listans eru þeir
Jón Otti Jónsson og Birg-
ir Sigfússon.
Frjáls verslun væntir
góðrar samvinnu við
fyrirtæki landsins nú sem
endranær. Listinn um
100 STÆRSTU hefur
löngu sannað gildi sitt og
er líklega mest lesna efni
um viðskipti og atvinnu-
mál hérlendis. Flett er
upp í listanum aftur og
aftur allan ársins hring
og vitnað er ótrúlega oft í
hann á meðal manna í
viðskiptalífinu.
100 STÆRSTU eru tal-
in einhver besta heimild-
in um rekstur íslenskra
fyrirtækja og stærð
þeirra, bæði út frá veltu
og starfsmannafjölda.
Mikil aukning hefur orðið
á tölfræðilegum upplýs-
ingum hvers konar á list-
anum á undanfömum ár-
um.
Þótt listinn gangi undir
heitinu 100 STÆRSTU
spannar hann miklu
meiri fjölda fyrirtækja.
Listinn nær til á um
sjöunda hundmð fyrir-
tækja en í prentun er
hann skorinn niður í um
230 stærstu fyrirtækin.
Raðað er niður eftir
veltu. Fjölmörg önnur
fyrirtæki raðast svo niður
á sérlistana svonefndu.
Sérlega vel hefur tekist
til með listann undanfar-
in tvö ár. Aldrei hafa jafn
100 STÆRSTU komu í fyrsta
skiptið út í bókarformi í
fyrra. Bókin var sérlega
glæsileg og vakti athygli
fyrir mikið upplýsingagildi.
mörg fyrirtæki sent inn
tölur um veltu.
Listinn er eingöngu
unnin upp úr gögnum sem
fyrirtækin senda blaðinu.
Þetta em skrifleg svör og
veita þau ekki aðeins ör-
uggustu upplýsingarnar
heldur er einnig minni
hætta á talnarugli við
vinnslu.
Þeim fyrirtækjum
fjölgar stöðugt sem senda
blaðinu ársreikninga
sína og kann Frjáls versl-
un þeim hinar bestu
þakkir fyrir.
Fulltrúar Frjálsrar
verslunar við gerð listans
um 100 STÆRSTU em
þeir Jón Otti Jónsson,
viðskiptafræðinemi í
Bandaríkjunum en hann
vann við gerð listans í
fyrra, og Birgir Sigfús-
son, nýútskrifaður við-
skiptafræðingur frá
Bandaríkjunum.
Þeir verða í stöðugu
sambandi við fyrirtæki
landsins fram í miðjan
ágúst þegar upplýsinga-
söfnun verður að mestu
lokið.
Það er einlæg von
Frjálsrar verslunar að
samvinnan við fyrirtækin
um gerð listans verði jafn
góð og áður.
Spurningaeyðublaðið
að þessu sinni verður
aðeins einfaldara í snið-
um en í fyrra. Sérstak-
lega biðjum við fyrirtæki
um að senda upplýsingar
um VELTU, ÁRSVERK og
GREIDD LAUN árið
1993.
Með fyrirfram þökk
fyrir góða samvinnu nú
sem endranær.
Jón G. Hauksson
8