Frjáls verslun - 01.04.1994, Blaðsíða 53
Yfir sófanum í setustofunni á Hótel Holti hanga myndir eftir Júlíönu Sveinsdóttur og Finn Jónsson,
Tvö sjónvörp eru í íbúðinni svo
gestir geta horft á sjónvarp, bæði í
setustofu og í svefnherbergi. Gisti
íbúðina tveir samtímis getur komið
sér vel að hafa tvö sjónvörp því velja
má um efni frá 20 stjónvarpsstöðvum
svo erfitt getur verið að koma sér
saman um á hvað skuli horfa. í svefn-
herberginu er öryggishólf og því ekki
nauðsynlegt að láta geyma fyrir sig
verðmæti í gestamóttöku. Baðher-
bergi er nýuppgert, flísalagt í hólf og
gólf, og einstaklega fallegt. Þar er að
sjálfsögðu hárþurrka fyrir þá sem
þurfa að hafa hraðan á þegar komið er
úr baði með blautt hár. Vandaðir
baðsloppar eru einnig til reiðu fyrir
alla gesti.
Þeir, sem vilja, geta fengið afnot af
tölvu og ljóstritunarvél á hótelinu og
auk þess notfært sér bréfasíma hót-
elsins eftir þörfum.
Hótelsvítumar á Holti em 35-45
fermetrar að stærð og kosta á bilinu
17.550-20.350 krónur á sólarhring.
HÓTEL LOFTLEIÐIR
Út um glugga svítunnar eða stáss-
stofunnar, eins og hún er kölluð á
Hótel Loftleiðum, blasir við fagurt út-
sýni, allt frá Bláfjöllum út á Reykja-
nes.
Á hótelinu er aðeins ein íbúð, 57
fermetrar, og tvö stór herbergi. Auk
þess eru þar allmörg lúxusherbergi
fyrir utan venjuleg hótelherbergi, að
sögn Einars Olgeirssonar hótel-
stjóra. Þegar gengið er inn í íbúðina
53