Frjáls verslun - 01.05.1995, Qupperneq 27
þannig að mörg þeirra hafa lagt upp
laupana af þeim ástæðum að þegar
þróun er svo ör verða eldri og reynd-
ari fyrirtæki að láta í minni pokann
fyrir nýjum, framsæknum fyrirtækj-
um með nýja framleiðslu og merki.
Nokkur eldri merkjanna hafa þó
a.rn.k. haldið velli, en hafa á tímabil-
um þurft að bíða lægri hlut fyrir nýrri
framleiðslu og merkjum. Eitt íslensku
merkjanna er Henson, sem átti rætur
sínar að rekja til þess er Halldór Ein-
arsson sat við saumvél ’68 og hannaði
búninga á íþróttamenn, og byggði síð-
ar stórt fyrirtæki í íslenskum íþrótta-
vöruiðnaði. Verslanir eins og Hellas,
Sport og Sportval voru stóru búðir
síns tíma fyrir einhverjum áratugum,
en hafa allar horfið á braut. Erlendis
átti sér stað mikil þróun og ný og
óþekkt merki voru að hasla sér völl,
sem síðar koma við sögu á íslandi.
Fyrir u.þ.b. 20 árum koma merki
fram, sem verulega eiga eftir að láta
að sér kveða í samkeppni við gamal-
grónu merkin, sem allsráðandi höfðu
verið lengi á markaði, eins og Adidas
og Puma. Þessi nýju merki voru t.d.
Nike og Reebok, sem hönnuðu skó
fyrir þolfimiíþróttina er varð æ vin-
sælli, auk fleiri merkja eins t.d. Tig-
er, sem síðar varð Asics. Árið 79
kom enn ein nýjungin í skógerð, sem
fólst í loftpúða í hæl sem höggdeyfi
fyrir hlaupara en hún hafði síðar meir
mikil áhrif á samkeppni í íþróttaskó-
framleiðslu. Þróunin sl. 15 ár hefur
verið hröð og alls kyns nýjungar og
merki komið fram, sem fyrirtæki hafa
markaðssett með misjöfnun árangri
og úrvalið hefur aldrei verið meira en
einmitt á þessu tímabili. Merki hafa
komið og farið á íslandi, en áhrif
harðrar samkeppni er óvægin, menn
verða að standa sig til að halda velli,
bæði í vöruþróun vöru og markaðs-
setningu. Mörg sígild framleiðsla hef-
ur haldið velli í einstökum greinum
íjrróttaframleiðslunnar, t.d. í knatt-
spyrnu- og handknattleiksskóm, en í
hlaupaskóm eru breytingar á milli ára,
og mjög breið lína í þeim efnum fyrir
bæði kynin, enda orðinn stóriðnaður í
dag. Trimmarar eru nýji markhópur-
inn og hefur þetta haft áhrif á sölu
fyrirtækja og markaðssetningu. Það
dugir ekki lengur að framleiða fyrir
afreksmenn því almenningur er
Unglingar eru sterkur hópur kaup-
enda á íþróttafatnaði.
Hér er hjólað með tilþrifum og á
sportlegan hátt.
Almenningur leggur upp úr að vera
sportlegur í frítíma sínum.
í sölu baðfatnaðar er hörð sam-
keppni eins og á öðrum sviðum
íþróttafatnaðar.
Tíska með tilheyrandi litadýrð
kemur mjög sögu í sölu íþrótta-
fatnaðar.
27