Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1995, Side 25

Frjáls verslun - 01.08.1995, Side 25
, m Friðrik Hróbjartsson, eigandi BESTA 1 Kópavogi. ... Leifur Ársælsson, framkvæmda ísleifs stjon hf Vest mannaeyjum Víglundur Þorsteinsson, framkvæmdastjóri hjá BM Vallá. Bergþór Baldvinsson, framkvæmdastjóri út- gerðarfyrirtækisins Njáls hf. í Garðinum. mannaeyjum, segir að stóraukin velta fyrirtækisins stafí af því að bátur fyrirtækisins, íslefur VE 63, hafi verið lengdur og burðargeta hans þar með aukist um 50 til 60%. Hann sé nú rúmar 1100 lestir að stærð. Veltu- aukning fyrirtækisins nam 79% á síð- asta ári og var það þriðja mesta veltu- aukning fyrirtækis hér á landi á síð- asta ári. „Þrátt fyrir að burðargeta bátsins hafi orðið rúmlega helmingi meiri þá er auðvitað helsta ástæðan fyrir góðu gengi sú að áhöfn bátsins hefur staðið sig afburðavel. Það hefur veiðst mjög vel. Ennfrem- ur hafði það mikið að segja að okkur gekk vel í Síldarsmugunni svonefndu, við veiddum þar um 2 þúsund tonn á síðasta ári.“ Leifur segir að bátur fyrirtækisins, ísleifur VE, veiði fyrst og fremst loðnu og sfld og er hann með um 2,5% af loðnukvótanum. Fyrirtækið var stofnað árið 1975 af þeim Leifi, Gunn- ari Jónssyni, skipstjóra á ísleifi, og Kára Birgi Sigurðssyni vélstjóra en sá m. kr. m. kr. [ 1 766 1 93 93 94 síðastnefndi seldi sinn hlut fyrir um átta árum. Þess má geta að Leifur hefur verið í útgerð í 33 ár. Fyrstu þrettán árin vann hann hjá föður sínum en síðan hefur hann verið framkvæmda- og út- gerðarstjóri ísleifs. „Þetta hefur gengið upp og niður í gegnum tíðina. Síðasta ár var upp á við, eins og sést á veltuaukningunni. Mér sýnist veltan á þessu ári ætla að verða mjög svipuð og í fyrra.“ BM Vallá: ÚTFLUTNINGUR Á VIKRI Víglundur Þorsteinsson, fram- kvæmdastjóri hjá BM Vallá, nefnir þrjár ástæður fyrir stóraukinni veltu fyrirtækisins á síðasta ári. Fyrirtækið jók veltu sína um 75% og var það fjórða mesta veltuaukning eins fyrir- tækis hérlendis á síðasta ári. „Það varð góður vöxtur í útflutn- ingi á vikri á síðasta ári, hann liðlega tvöfaldaðist á milli ára. Þá varð áfram- haldandi vöxtur í sölu steina og hellna í garða en það er þáttur sem vaxið hefur jafnt og þétt hjá fyrirtækinu á undanfömum ámm og er árangur stöðugrar vöruþróunar. Ennfremur varð aukning í steypusölu en þá aukn- ingu má að mestu rekja til þess að við keyptum þrotabú Óss hf. af Iðnlána- sjóði og þar með hætti sjóðurinn rekstri á steypustöðinni. Fyrir vikið fengum við stærri sneið af markaðn- um.“ Starfssvið BM Vallá skiptist í þrjá meginflokka. Um 40% af tekjum koma af hefðbund- inni steypu- sölu, um 30% af vikurútflutningi og um 30% af sölu steina og hellna til garða. í fyrstu var BM Vallá hefðbundin steypustöð. Fyrirtækið færði út kvíamar árið 1979 er það hóf útflutn- ing á vikri. Fimm ámm síðar, árið 1984, hóf það framleiðslu á steinum og hellum í garða. BM Vallá flytur út vikur undir merkjum dótturfélags síns, Vikurvara hf.. BM Vallá 25

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.