Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1995, Side 32

Frjáls verslun - 01.08.1995, Side 32
MARKAÐSMAL stæður í ákvarðanatöku leyíistaki má vera. Allir samningamir virðast þó leggja áherslu á skyldur leyfistaka og réttindi leyfisgjafa. Samningamir em yfirleitt bundnir við ákveðinn tíma, t.d. 7 ár. Er oft miðað við að sérleyf- istaki nái að afskrifa upphaflega fjár- festingu sína á því tímabili. Endumýj- un miðast gjaman við upphaflegt samningstímabil. Sérleyfisgjafi fer fram á tvenns konar þóknun, upphaflega greiðslu og fasta greiðslu á samningstímabilinu. Upphaflega greiðslan er fyrir rétt- indaleyfi sérleyfisins en hún er þá hugsuð sem mótvægi við þann út- lagða kostnað sem sérleyfisgjafi verður fyrir við opnun nýrra útibúa. Upphafsgreiðslan er misjöfh, getur verið frá 25 þúsundum króna til 5 milljóna fyrir þekktustu sérleyfin. Því stærri og þekktari sem keðjan er því hærri er greiðslan. Reglulegar, fastar greiðslur eða „royalty“ em reiknaðar sem hlutfall af nettó veltu. Sérleyfistaki er þá að greiða fyrir réttindi sem fylgja sér- leyfinu og fyrir áframhaldandi þjón- ustu sem sérleyfisgjafi á að veita. Hlutfall greiðslnanna er yfirleitt á bil- inu 7-10 prósent af veltu, án tillits til hagnaðar fyritækisins. Sérleyfistaki tekst á hendur ákveðnar skyldur. Þær helstu em að hann verður að geta fjármagnað reksturinninn sjálfur og verður að hefja rekstur innan tiltekins tíma frá undirritun samnings. Hann verður að fylgja gæðakröfum til að viðhalda orð- spori sérleyfisins og vemda við- skiptavild sérleyfisins. Sérleyfistaki og starfsmenn eru bundnir þagnar- heiti varðandi verkkunnáttu sem sér- leyfinu fylgir og má sérleyfistaki ekki notfæra sér verkkunnáttu né annað, sem tengist sérleyfinu, til að fara í samkeppni við sérleyfisgjafann á samningstímabilinu eða að því loknu. Sérleyfistaki verður í flestum tilfell- um að fá samþykki frá sérleyfisgjafa í hvert sinn sem hann tekur ákvörðun sem varðar reksturinn. Einnig er að finna í samningnum ákvæði um verð, opnunartíma, lágmarksveltu og breytingar á vöm. Þá er algengt að sérleyfisgjafi krefjist þess að sérleyf- istaki leggi 2-3 prósent veltunnar í sameiginlegan auglýsingasjóð. SÉRLEYFIÁ ÍSLANDI Þrátt fyrir gífurlega aukningu í notkun sérleyfa til markaðsfærslu vöru og þjónustu í heiminum er ein- Skúli Þorvaldsson, Dominos: VÖRUMERKIN ALLTAF STERKARI0G STERKARI □ llt, sem við höfum gert okk- ur vonir um, hefur gengið eftir. Við eigum í góðum samskiptum við Dominos Intema- tional sem eru skilningsríkir þegar kemur að sérstöðu markaðarins hér á landi. Þeir skilja að við viljum hafa hlutina öðmvísi. Við vomm opnir fyrir nýjum tillögum og þeir sömu- leiðis, enda bentum við á að þeir væru staðnaðir á sumum sviðum og frekar einskorðaðir við bandarískan hugsunarhátt," sagði Skúli Þor- valdsson, stjórnarformaður Futura, aðaleiganda Dominos á íslandi. Sérleyfissamningur við Dominos varð til 1993 en Dominos er stærsta heimsendingarkeðja Bandaríkjanna. í dag eru þijár Dominos búðir rekn- ar hér, allar á höfuðborgarsvæðinu. Skúli segir Futura vera áskrif- anda að ákveðinni uppskrift og áskr- ifanda að viðskiptum. Þessi formúla byggi á 30 ára reynslu. Allt sé reikn- að út og menn geti því verið fullvissir um að dæmið gangi upp. „Vömmerki, eða Brand recogni- tion, verða alltaf sterkari og sterkari og þess vegna hefur þekktum veit- ingastaðakeðjum eins og KFC, McDonalds og Pizza Hut tekist að hasla sér völl um allan heim. Stað- Skúli Þorvaldsson, Dominos. bundin fyrirtæki geta eRKi tagnað jafn góðum árangri, með undan- tekningum þó. Lógó, litir og vara þekktu staðanna er eins alls staðar en menn em oft í vafa þegar þeir sjá staðbundinn skyndibitastað. Skúli segir reksturinn vera eins og hjá hveiju öðm fyrirtæki og markmiðin þau sömu; að mynda hagnað, skapa verðmæti og at- vinnu. En þó vömmerkið sé þekkt lentu Skúli og félagar í óvæntri uppákomu við upphaf rekstursins. Þeirri sögu hafði verið komið á kreik að Dominos á íslandi væri útlent fyrirtæki og hagnaðurinn væri flutt- ur úr landi. Að auki var fullyrt að aðaleigandi Dominos ytra styddi Greenpeace-samtökin. „Þetta er allt tóm vitleysa og byggir á misskilningi varðandi sér- leyfi. Við emm alíslenskt fyrirtæki og greiðum okkar skatta og skyldur hér.“ 32

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.