Frjáls verslun - 01.02.1997, Side 66
FJÁRMÁL
með þessum hætti.
Hvernig hugsanlegur
arður skiptist er trúnaðar-
mál milli hluthafanna og
Birgis Leifs og verður
ekki látið uppi. Við ætlum
að leggja töluverða vinnu
í fjárhagsdæmið, vera
með alls kyns uppákomur
til þess að ná inn tekjum
svo ekki þurfi að hreyfa
við höfuðstólnum. Reynt
verður að ná í einhveijar
tekjur hérna á Islandi í
gegnum auglýsingar og
fleira,” sagði Bjarni.
SÆNSKA MÓTARÖÐIN
„Það er náttúrulega
verið að gera út á verð-
launafé á erlendum móta-
röðum því það eru engir
peningar að ráði í golfinu
á Islandi. Birgir Leifur
stefnir að því að taka þátt
í sænsku mótaröðinni. Ef
það gengur eftir, sem við
vonumst eftir, þá er þar
fullt af peningum, bæði
verðlauna- og auglýsinga-
fé. En það má alveg eins
búast við því að þetta fari
hægt af stað og við meg-
um búast við nokkurra
ára rólegheitum og litlum
arði. Ef Birgir kemst inn á
þessa sænsku mótaröð,
sem við erum að vona að
takist hjá honum, þá er
verðlaunaféð á þeim mót-
um nokkuð gott.
Það er nokkuð mis-
jafnt hve háum upphæð-
um verðlaunaféð nemur á
sænsku mótaröðinni, eftir
því hvaða mót á í hlut. Al-
geng íýrstu verðlaun í
sænsku mótaröðinni eru
350.000 krónur sænskar
(rúmar 3,2 milljónir ís-
lenskra króna). Síðan eru
verðlaun fyrir nokkur
sæti niður eftir töflunni
og flestir fá eitthvað sem
dekkar mótakostnaðinn
og þátttökuna.
Birgir var nýlega í æf-
ingabúðum í Wales þar
Meistíiri sveiflar til sigurs.
Samningurinn gengur út á að
hluthafarnir fái ákveðna upphæð af
vinningsfé ásamt auglýsingatekjum.
Samkvæmt honum mega þeir nota
Birgi í allar auglýsingar sem þeir
vilja. Samningurinn er til fjögurra ára
og er Birgir á föstum launum hjá
félaginu. Þar á eftir kemur fjögurra
ára óráðstafað tímabil þar sem
hluthafarnir hafa forkaupsrétt.
Samningurinn er að mestu að
erlendri fyrirmynd.
:
sem hann kynnti sér að-
stæður íýrir fýrsta mótið
sem hann tók þátt í helg-
ina 8. - 9. mars. Mótið í
Wales var liður í undir-
búningi undir átökin í Sví-
þjóð, en úrtökumótið í
Svíþjóð mun ráða því
hveijir fá keppnisrétt á
sænsku mótaröðinni.
Hugmyndin að hluta-
fjárútboðinu kviknaði á
milli okkar gömlu hand-
boltafélaganna, Gunnars
Þorlákssonar, Stefáns
Gunnarssonar, Rúnars
Gíslasonar og mín, þegar
við fýlgdumst með ævin-
týralegum golfhring Birg-
is Leifs á landsmótinu í
fyrra. Þrír okkar voru í
gömlu „mulningsvélinni“
í Val. Við fórum að tala
saman um að það væri
synd ef Birgir Leifur
kæmist ekki út í atvinnu-
mennsku með þá hæfi-
leika sem hann hefur yfir
að ráða. Ut frá þessum
hugleiðingum okkar
kviknaði hugmyndin. Síð-
an þá hefur farið gífurleg
vinna í þetta, að koma
stráknum af stað og
skipuleggja þetta dæmi.
Við höfum að sjálfsögðu
velt því fyrir okkur hvort
fleiri tækifæri gefist.
Það þarf þá ekkert
frekar að vera bundið við
íþróttamenn, það gæti
verið alveg eins skynsam-
legt að íjárfesta í einhverj-
um efnilegum úr menn-
ingargeiranum. Ef af því
yrði myndum við gera
það innan sama hóps og
stendur að hlutaíjárútboð-
inu um Birgi Leif. Við yrð-
um bara að sjá til hvaða
kostnaður myndi fylgja
því og haga okkur í sam-
ræmi við það. Hlutafjárút-
boðið um Birgi Leif er
byrjunin,“ sagði Bjarni
Jónsson.
66