Frjáls verslun - 01.02.1997, Side 81
Qyrirtækið Catco hef-
ur vakið athygli fyrir
aukin umsvif í út-
flutningi á íslensku áfengi og
það framtak að setja aftur á
markað Hvannarótar-
brennivín sem margir muna
eftir. Eigendur Catco eru
þrír, Ámi Helgason fram-
kvæmdastjóri, Þórhallur
Steingrímsson, kaupmaður
í Grímsbæ, og Kaupfélag
Borgfirðinga í Borgamesi
en þar fer framleiðslan
fram.
„Þetta fyrirtæki var upp-
haflega stofriað í apríl 1993
til þess að vinna að útflutn-
ingi á lambakjöti og gerði
það fyrstu tvö árin. Þátta-
skil urðu í starfseminni
haustið 1995 þegar við
keyptum áfengisverksmiðju
þá sem áður var í eigu
ÁTVR og síðar Eldhaka.
Verksmiðjan var í Hafnar-
Ámi Helgason, 33 ára, framkvæmdastjóri og einn þriggja eigenda Catco hf. Fyrirtæk-
ið framleiðir áfengi. Það keypti árið 1995 áfengisverksmiðju þá sem áður var í eigu
ÁTVR og síðar Eldhaka. FV-mynd: Kristín Bogadóttir.
ARNIHELGASON, CATCO
firði en við fluttum hana í
Borgarnes."
BRENNIVÍN TIL ÚTFLUTNINGS
Ámi segir að til skamms
tíma hafi stærstur hluti
framleiðslu Catco farið á
innanlandsmarkað. íslenskt
brennivín var stærstur hluti
þess ásamt Tindavodka,
Dillons Gini, Eldurís vodka,
og nú síðast Hvannarótar-
brennivíni.
„Það var hinsvegar allan
tímann ljóst að framtíð fyrir-
tækisins lá í útflutningi og
það var okkar sannfæring að
þar væm óunnin lönd. Sala á
öllum tegundum af íslensku
áfengi hefur dregist mjög
mikið saman og er trúlega í
dag í kringum 10% af því
sem hún var t.d. í íslensku
brennivíni þegar það seldist
mest. Við höfum unnið að
þessu hörðum höndum og
TEXTI: PflLL ÁSGEIR ÁSGEIRSSON
erum að uppskera laun erf-
iðis okkar um þessar mund-
ir. Pölstar vodki, sem við
framleiðum, verður fluttur
út til Bretlands og gerir
fyrsti samningurinn ráð fyrir
hátt á annað hundrað þús-
und flöskum. Þetta er gífur-
lega mikið samanborið við
að heildarframleiðsla okkar
á innanlandsmarkað er í
kringum 300 þúsund flöskur
árlega.
Við emm að gera samn-
inga um útflutning á vodka
til Bandaríkjanna og þar
verður einkum um að ræða
Eldurís vodka.“
Ámi segir að þótt mörg-
um þyki brennivín frekar
ófínn drykkur hér heima
hljóti hann alls staðar mikið
lof þar sem hann sé kynnt-
ur. Staðreyndin sé sú að
þetta sé fágaður og mjög
vandaður snaps.
Með þetta í huga er Catco
að endurskoða umbúðir,
hönnun og markaðsmál fyrir
áfengi sem þeir framleiða.
Samstarfsaðilar í því hafa
verið auglýsingastofan Gott
fólk annarsvegar og hins-
vegar breskt fyrirtæki,
Drinking Consultancy, sem
sérhæfir sig í markaðssetn-
ingu áfengis og hönnun um-
búða, en samningurinn um
Pölstar vodka og umbúðim-
ar um hann eru afrakstur
samstarfsins við Bretana.
ÚTIVIST, SAGNFRÆÐI
0G HEIMSPEKI
Ámi er fæddur á Dalvík
2. júní 1964 og ólst þar upp.
Hann varð stúdent frá MA
1984 og fór þaðan að læra
sagnfræði og heimspeki við
Háskóla íslands. Hann hvarf
frá námi til þess að vinna að
tölvuvæðingu hjá Goða og
búvörudeild Sambandsins. í
framhaldi af því var honum
boðið starf markaðsstjóra
hjá Goða og gegndi hann því
frá 1989 til 1994 þegar hann
tók til starfa hjá Catco og
varð síðan hluthafi þar 1995
en segist enn dreyma um að
klára sagnfræðina.
Árni býr með Ragnheiði
Þórðardóttur. Þau eiga
saman einn son en Ami á
þijá syni úr fyrri sambúð.
„Best finnst mér að vera
samvistum við fjölskylduna
og stunda útivist. Mín
helstu áhugamál önnur eru
bókmenntir, sagnfræði og
listir. Mér líður best með
bók í hendi og les mikið
skáldskap og sagnfræði og
hlusta á góða tónlist. Eink-
um er það klassísk tónlist
hin seinni ár en áður fyrr
dáði ég m.a. þungarokk og
aðrar tónlistarstefnur. “
81