Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1997, Side 82

Frjáls verslun - 01.02.1997, Side 82
Sólveig Eiríksdóttir, annar eigenda veitingastaðarins Græns kosts við Skólavörðu- stíginn. Staðurinn er vinsæll og hefur á margan hátt tekist að breyta ímynd græn- metisfæðis en margir hafa litið svo á að það stæði fyrir hippakúltúr, lopapeysur, tréklossa og innhverfa íhugun. FV-mynd: Kristín Bogadóttir. Eiríksson, bróðir hennar, er yfírkokkur á Grænum kosti, enda lærður kokkur en það er Sólveig ekki. „Við systkinin erum alin upp í þessum anda og ég sjálf hef verið á grænmetis- fæði í rúmlega 17 ár. Mín menntun er hinsvegar ekki hefðbundin til matargerðar því ég er lærður handa- vinnukennari, er með próf úr Samvinnuskólanum og lauk auk þess prófi í hönnun frá Myndlista- og handíða- skólanum. Ég bjó lengi í Kaupmannahöfn og sótti þar mikinn ijölda námskeiða í matargerð og fleiru sem tengist þessu.“ MEÐ FÓTBOLTADELLU Sólveig er í sambúð með Ólafi Jónssyni áfengisráð- gjafa og þau eiga saman 3 SÓLVEIG, GRÆNUM KOSTI I I itt af því, sem vakti fyrir okkur þegar við I----1 opnuðum veitinga- staðinn Grænan kost fyrir tveimur árum, var að breyta ímynd grænmetisfæðis. Grænmetisfæði var í hugum margra hippakúltúr, lopa- peysur, tréklossar og inn- hverf íhugun. Við teljum að okkur hafi tekist að setja upp veitingastað sem höfðar til mun breiðari hóps og við sjáum það á viðskiptavinun- um, - sagði Sólveig Eiriks- dóttir í samtali við Frjálsa verslun. Sólveig og meðeigandi hennar, Hjördís Gísladóttir, hafa með Grænum kosti á Skólavörðustíg 8 notið vax- andi vinsælda meðal þeirra sem jafnvel skilgreina sjálfa sig alls ekki sem grænmet- isætur. Sólveig segir að þrátt TEXTI: PÁLL ÁSGEIR ÁSGEIRSSON 82 fyrir að staðurinn virðist höfða til mun breiðari hóps en samskonar staðir aðrir þá sé þama um að ræða í raun „harðlínufæði" í þeim skilningi að það standist kröfur vandlátustu græn- metisæta. „Hér er ekki notaður hvítur sykur, ekki hvítt hveiti, ekki ger og nær eng- ar mjólkurafurðir. Hitt er svo annað mál að við leggj- um mikla áherslu á að mat- urinn sé góður og fallegur. Þetta gerir það að verkum að jafrivel fólk, sem segist ekki vera grænmetisætur, kemur hvað eftir annað vegna þess að því finnst maturinn einfaldlega svo góður.“ NÁMSKEIÐ UM GERSVEPPAÓÞOL Segja má að forsaga máls- ins sé sú að Sólveig og Hjör- dís störfuðu saman hjá Nátt- úrulækningafélagi íslands. Sólveig sá um matreiðslu- námskeið sem haldin voru sérstaklega fyrir fólk sem þjáist af gersveppaóþoli. Mikil aðsókn var að nám- skeiðunum og hugmyndin um að opna veitingastað, sem byggði á því sem þar var kennt, var því búin að geijast með þeim stöllum töluvert lengi þegar þær létu til skarar skríða. ÓHEFÐBUNDIN MENNTUN Sólveig er helsti hug- myndasmiður og matgæð- ingur staðarins þegar kem- ur að hinni eiginlegu matar- gerð og segist vinna mikið tilrauna- og undirbúnings- starf heima í sínu eigin eld- húsi auk þess að skoða mat- reiðslubækur og blöð. Karl ára dóttur og Sólveig á auk þess 17 ára dóttur úr fyrri sambúð. Sólveig segir að undanfarin ár hafi verið annasöm og lítiU tími gefist til þess að leggja stund á áhugamálin sem eru matar- gerð, jóga og gönguferðir. „Ég er mjög hlynnt aM líkamsrækt en fæ nóga hreyfingu hér í vinnunni. Þess utan finnst mér gott og nauðsynlegt að fara í göngu- ferðir.“ Auk þessa ljóstrar Sól- veig því upp að hún sé með mikla fótboltadellu og láti ekkert tækifæri ónotað til þess að fylgjast með sínu liði, sem er KR, en Sólveig er fædd og alin upp í Vestur- bænum. í æsku dreymdi hana um að fá að spila fót- bolta og lét snoða sig í von um að komast í lið en allt kom fyrir ekki.

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.