Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1998, Blaðsíða 31

Frjáls verslun - 01.09.1998, Blaðsíða 31
VIÐTAL Tékkar til íslands JVÁrið 1991, nánar tiltekið þann 15. nóvember, var Restaurant Reykjavík opnað,” segir Þórir í viðtali við Fijálsa verslun. I byijun átti hann staðinn í félagi við tékkneskan mann en eftir að útlend- ingum var leyft að eiga og reka fyrirtæki í eigin nafni, varð Reykjavík eign þeirra Þóris og Ingibjargar, konu hans. „Rekst- urinn byijaði á götuhæðinni en er nú einnig á annarri hæð og í kjallara húss- ins númer 20 við Karlsgötu. Inni eru sæti fyrir 147 og á sumrin eru 60-70 sæti á veröndinni. Á síðasta ári voru gestir á Reykjavík langt á annað hundrað þúsund talsins.” SJÖ ÁRA AFMÆLI Restaurant Reykjavík var hannað írá a-ö í samræmi við óskir eigendanna. Höfð voru snör handtök við innréttingarnar sem hófust 30 september 1991 og tóku ekki nema um mánaðartíma. Nokkur dráttur varð hins vegar á formlegri opn- un vegna þess að skriffinnskan hvarf ekki með kommúnistísku yfirráðunum í Tékkóslóvakíu og 7 ára afmælis staðar- ins verður minnst á næstunni. Staðurinn er skemmtilegur og skreytingar óvenju- legar. Mikið fiðlusafn og safii blásturshljóðfæra prýðir veggi og á einum veggnum hangir hálft píanó, sem minn- ir í fljótu bragði svolítið á hálfa, ameríska kaggann á Hard Rock í Reykjavík. Upp- hækkaði veitingapallurinn, eða veröndin, fyrir framan Reykjavík er nokkuð óvenjulegur frá sjónarhóli Pragbúa þar sem veitinga- hús eru iðulega með borð utandyra en þá undantekn- ingarlítið á gangstéttum. Rússneskir skransalar höfðu áður haft aðsetur þar sem pallurinn er í dag og selt vörur sínar úr bíl- skottum. Mun borgaryf- irvöldum hafa þótt gott að losna við Rússana af götunni og fá í þess stað veitingapall Þóris. Milli 30 og 40 manns vinna á Reykja- vík og þar af eru um 95% Tékkar. Þykir það merkilegt því yfirleitt hneigjast veit- ingamenn, sem starfrækja erlenda staði í Prag, til þess að velja starfsmenn frá eigin heimalandi. Af og til koma íslensk- ir matreiðslumenn til starfa á Reykjavík '97 Ferða-Tékkum til Islands liefiir fjölgað mjög á síðustu árum. og með því móti kemur stöðugt nýr og ferskur andi inn í fyrirtækið og kannski líka nýjar hugmyndir um matreiðslu þess hráefnis, sem staðurinn hefur lagt mikla áherslu á, sem er góður fiskur. I Tékklandi borðar fólk yfirleitt ekki fisk nema á jólunum og þá vatnakarfa. Á Reykjavík er mikið af fiskréttum á mat- seðlinum og kemur hann frá Islandi, en reyndar líka frá Hollandi, Belgíu og Frakklandi. Restaurant Reykjavík hefur fengið lofasamleg ummæli í tékkneskum blöð- um og notið góðs af þeim skrifum í formi aukinna vinsælda meðal Tékka sjálfra. Þeir eru um 20% af gestum staðarins, sem annars mættí ef til vill flokka sem túristastað. Þetta vakti nokkra athygli blaðamanns Fijálsr- ar verslunar, því „venjulegur Tékki” er ekki með nema um 25 þúsund krónur á mánuði og hefur því tæpast ráð á að sækja mikið veitingastaði þar sem verðið er ekki í lægsta kantí. ÍSLANDSKYNNINGAR 0G REYKJAVÍK EXPRESS Þórir varð ræðismaður í Tékkó- slóvakíu árið 1992 en aðalræðismaður Is- lands í Tékklandi árið 1995. Þau hjón hafa sýnt landkynningarstarfi mikinn áhuga þann tíma sem þau hafa verið í Prag. Þau hafa haldið Islandsdaga meðal annars í nokkrum borgum utan Prag. Þetta hafa verið kynningar á landi og þjóð og má gera ráð fyrir að þær hafi bor- ið töluverðan árangur, því samkvæmt töl- um frá Utlendingaeftirlitínu og Ferða- málaráði komu 220 Tékkar til Islands árið 1992, frá því sem þá var Tékkó- slóvakía. Þrátt fyrir klofning landsins í tvö ríki, Tékkland og Slóvakíu, eru ferða- mennirnir frá þeim enn taldir saman í hérlendum ferðamannatölum og voru þeir 996 árið 1997. En þótt landkynningarstarfið og rekstur Reykjavíkur taki sinn tíma er Þórir með fleira á sinni könnu. Hann er kominn á nýja braut í veitingarekstrinum og hefur opnað hraðréttastað, Reykjavik Express, í stórri verslunarkringlu í bæn- um Pruhnice fyrir utan Prag. Staðurinn á að byggja á heilbrigði og hollustu í fæðu- vali og ætlunin er að leggja áherslu ferskleika og nýjungar í réttunum. Meginuppistaðan verður fiskur. Reykja- vík Express verður einn af ijórum veitinga- stöðum í verslunarmið- stöðinni og fyrirkomu- lag líkt því sem er í Kvikk í Kringlunni. Þarna verður meðal ann- ars Kentucky Fried Chicken og einnig kín- verskur veitingastaður. Áætlað er að yfir 100 þús- und manns muni koma í „kringluna” vikulega. Hol- lenskt fyrirtæki byggði verslunarmiðstöðina og er ráðgert að vera með sam- bærilegar „kringlur” á níu stöðum öðrum í Tékklandi. Búast má við að gestir Reykjavik Express verði nær eingöngu Tékkar svo ekki er ólíklegt að tengingin við Restaurant Reykjavík eigi eftír að færa hinum vinsæla veitingastað við Karlsgötu enn fleiri innlenda gestí í fram- tíðinni en verið hefúr fram tíl þessa. 03 - • 636 5Z4 » 1 1 l 92 H 93 f| 94 H '95 | 1 1,1 31
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.