Frjáls verslun - 01.11.1999, Síða 8
Hótel Selfoss er frábært
ráðstefnu- og fundahótel
Stefán Örn Þórisson hefur verið hótelstjóri á Hótel Selfossi í tœp tvö
ár. Hann hafði áður starfað á hótelum bœði hér á landi og í Sviss og
Bandaríkjunum.
Hótel Selfoss er sérlega vel í stakk búið til þess að taka
á móti ráðstefnum, bæði stórum og smáum," segir
Stefán Örn Þórisson hótelstjóri, sem stjórnað hefur
hótelinu frá því í mars 1998. „Mörgum þykir hentugt að geta
haldið ráðstefnur, fundi eða námskeið utan Reykjavíkur,
enda nýtist tíminn þar oft betur en í hringiðu höfuðborgar-
innar."
Á Hótel Selfossi eru þrír ráðstefnusalir sem rúma um 450 manns þegar
opnað hefur verið á milli þeirra. Tveir minni salirnir taka um 100 manns í
sæti hvor og sá þriðji yfir tvö hundruð, en það fer að sjálfsögðu nokkuð
eftir því hvernig stillt er upp í sölunum hversu margir komast þar fyrir
hverju sinni.
Hótel Selfoss er til húsa að Eyravegi 2.
Fundir, ráðstefnur, námskeið
„Hótelið er mjög vel tækjum búið og hefur yfir að ráða öllum búnaði sem
til þarf til þess að uppfylla kröfur sem gerðar eru til ráðstefnuhótela nú til
dags," segir Stefán Örn og bætir við: „Auk þess erum við fullkomlega
samkeppnisfærir í verði." Hann segir að fyrirtæki, og ekki sfður félaga-
samtök, noti hótelið mikið fyrir fundi og ráðstefnur. Einnig hafa ýmsir að-
ilar haldið þar nokkurra daga námskeið og er þá oft hafður sá háttur á að
námskeiðið hefjist á mánudegi og standi allt fram á föstudag. Að því búnu
fer fólk heim en sé námskeiðið lengra kemur það aftur eftir helgina.
Þeim sem hafa haldið fundi eða námskeið á Hótel Selfossi þykir mik-
ill kostur að komast í burtu frá Reykjavík. Það verður til þess að þátttak-
endur halda betur hópinn, ekki aðeins á meðan á fundum stendur heldur
líka í kaffihléum eða í hádegis- og kvöldmat í stað þess að menn tvístrist
og fari jafnvel í burtu til þess að sinna ýmsum erindum. Kaffi er annað
hvort borið fram inni I fundarsölunum eða frammi í almenningi fyrirfram-
an salina. í Betri stofunni, veitingasal Hótel Selfoss, snæðir fólk frábær-
an og skemmtilega framreiddan mat í samræmi við óskir þeirra sem efna
til námskeiðanna eða fundanna. Á kvöldin getur fólk svo slakað á í kon-
íaksstofunni.
Smærri salirnir tveir á Hótel Selfossi eru sérlega hentugir fyrir minni
fundi þar sem fólk vill hafa rúmt um sig á meðan á þeim stendur. í stærri
salnum er auk alls hefðbundins búnaðar útdraganlegt svið með hljóðbúri.
Úr búrinu má stjórna til dæmis hljóði og lýsingu og hljóðupptökum og
einnig er hægt að stjórna þaðan myndavél vilji menn taka fundinn upp á
myndaband. Internet-tenging er á hótelinu og geta menn nýtt sér hana að
vild.
Góður aðbúnaður
og maturinn ekki síðri
Á Hótel Selfossi er 21 fallega búið herbergi. Hótelið hefur samvínnu
við Gesthús við Engjaveg og þar er hægt að útvega gistingu fyrir 22,
miðað við að allir séu í einir f herbergjum en það er almennt krafa gesta
á fundum eða ráðstefnum. Gesthúsin, eins og hótelið sjálft, eru rekin
af KÁ á Selfossi. í þeim eru eldhús, baðherbergi og stofa og þar er að
Matseðill hótelsins erfjölbreyttur. Þetta er ofnbakaður lax með sinneþs-
kornasósu og rauðvínslegnum lauk.
8 IMIIimillk'H