Frjáls verslun - 01.11.1999, Síða 10
JFRÉTTIR
□ að var á mánudegi,
nánar tiltekið þann 4.
maí, í dagrenningu,
sem Felix Blum ákvað að
verða ríkur.“ Þannig hefst
bókin Felix og kauphallaræv-
intýrið sem bókaútgáfan
Æskan sendi frá sér á dögun-
um. Hvað ungur nemur gam-
all temur, segir gamalt mál-
tæki og kannski það eigi við
um þessa ágætu bók. Sögu-
Benedikt Jóhannesson, framkvæmdastjóri Talnakönnunar, og Þór-
unn Sigurðardóttir, stjórnandi Reykjavíkur, menningarborgar Evr-
ópu árið 2000, handsala hér samning um að ritið Reykjavík This
Month verði opinbert kynningarrit Menningarborgarinnar.
FV-myndir: Geir Olafsson.
hetjurnar eru 12-13 ára
börn sem læra leyndar-
dóma viðskiptanna
gegnum eigin reynslu
og annarra. Bókin er
skemmtileg aflestrar og
ekki er verra að aftast í
henni eru ýmis hugtök
viðskiptalífsins skýrð
vandlega út og gagn-
ast hún þannig bæði
börnum og fullorðn-
um. Sá kafli er raunar
býsna fróðlegur. Þessi bók
er tilvalin til að glæða áhuga
á fjármálum en ekki síður til
að gæta sín á óprúttnum fjár-
aflamönnum. 30
Bókin Felix og kaup-
hallarœvintýrið er býsna
skemmtileg bók. Söguhetj-
urnar eru 12-13 ára.
Reykjavík This Month
nbyrjun desember 1999
var gerður samningur
um það að rit Talna-
könnunar, Reykjavík This
Month, verði opinbert kynn-
ingarrit Reykjavíkur, menn-
ingarborgar Evrópu árið
2000. Talnakönnun, sem
einnig gefur út Frjálsa versl-
un, er stærsti útgefandi á
kynningarefni fyrir ferða-
menn hér á landi. I tilefni af
menningarárinu verður út-
gáfutíðni Reykjavík This
Month aukin og ritið stækk-
að. Ritstjóri er Þóra Gylfa-
dóttir og auglýsingastjórar Reykjavík This Month. í tilefni
Sigríður H. Sigurbjörnsdóttir af menningarárinu verður út-
og Ottó Schopka. 33 gáfutíðni aukin og ritið stækkað.
Eg ætla að verða ríkur!
VERÐBREFASTOFAN
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík Sími 570 1200
10