Frjáls verslun - 01.11.1999, Page 13
þeir verði sameinaðir í einn
sjóð tíl hagræðingar.
„Sjóðirnir voru í upphafi
stofnaðir tíl að hjálpa kaup-
mönnum að ijármagna tæki og
endurbætur á verslunum og
því um líkt. Einu skilyrðin fyrir
því að fá inngöngu í sjóðina er
að vera félagi í Kaupmanna-
samtökunumsegir Gunnar
sem starfað hefur við verslun
frá fimmtán ára aldri og stund-
að kaupmennsku frá árinu
1951 og hefur því séð tímana
tvenna. Hann byggði og rak
verslunarmiðstöðina Hólagarð,
leigði síðan Hagkaupi kjörbúð-
ina 1990 en seldi fasteignirnar í
Hólagarði árið 1998.
„Lánakjör hjá sjóðunum
eru mjög góð,“ segir Gunnar.
„Lán til kaupmanna eru veitt
tíl allt að 20 ára, verðtryggð og
oftast fá menn lán eftír því sem
þeir þurfa og hafa nægileg
veð. Lántakendur hafa valkostí
varðandi fjölda afborgana á
ári, frá fjórum og upp í tólf.
Vextirnir miðast við útláns-
vextí sem eru að jafnaði aðeins
1% hærri en meðalávöxtun í
viðskiptakerfi Verðbréfaþings
Islands á nýjasta flokki hús-
bréfa til 25 ára. Utlánsvextír
hafa verið í kringum 5,5% -
sem telst býsna gott. Þessir
sjóðir hafa verið ómetanleg
stoð félagsmanna og styrkur
fyrir samtökin. Ávöxtunin hef-
ur verið það góð að þeir sem
eiga peninga i honum og hætt-
ir eru að versla hafa ekld séð
ástæðu tíl að taka þá út.“
Gunnar er bjartsýnn á fram-
tíð verslunarinnar í landinu og
segir að öllu leytí betra að reka
verslun nú en var á meðan bönn
og höft voru á öllu. S5
Gunnar Snorrason kauþmaður raka í áraraðir verslunina Hóla-
garð. Nú er hann formaður Stofnlánasjóðs matvöruverslana.
0unnar Snorrason
kaupmaður er for-
maður Stofnlána-
sjóðs matvöruverslana. Hann
segir þrjá stofnlánasjóði starf-
andi innan Kaupmannasam-
takanna, en þeir eru auk Stofn-
lánasjóðs matvöruverslana, Al-
mennur stofnlánasjóður Kaup-
mannasamtaka Islands og
Stofnlánasjóður raftækjasala.
Gunnar segir hugsanlegt að
Vðxtur fyrirtækisins
felst í fjarskiptum
egar blaðamaður
Frjálsrar verslunar
var á Reyðarfirði á
dögunum tók hann hús á
hjónunum Jóhannesi Páls-
syni og Elísabetu Benedikts-
dóttur. Þar rekur Jóhannes
öflugt verkfræðifyrirtæki,
Hönnun og ráðgjöf, en Elísa-
bet sinnir útibússtjórastöðu
hjá Sparisjóði Norðíjarðar
ásamt því að sitja í bæjar-
stjórn Fjarðabyggðar. Það er
varla ofmælt að segja að þau
standi í ströngu á Reyðar-
firði. Fyrirtæki Jóhannesar
er hlaðið verkefnum og El-
ísabet hefur verið að koma á
laggirnar nýju útíbúi spari-
sjóðsins og situr sem bæjar-
fulltrúi í sameinuðu sveitar-
félagi. Þau ákváðu að setjast
að á Reyðarfirði, heimabæ
Elísabetar, eftir .að hafa verið
búsett í Álaborg í Danmörku
um nokkurra ára skeið og
stundað þar nám. Hann er
rekstrarverkfræðingur, hún
rekstrarhagfræðingur.
Það var árið 1987 sem Jó-
hannes var ráðinn verkfræð-
ingur hjá fyrirtækinu Hönn-
un, sem þá var með útíbú á
Reyðarfirði, og vann að verk-
efnum í gatnagerð fýrir sveit-
arfélögin á Austurlandi.
Þremur árum siðar ákvað
hann að stofna eigið verk-
fræðifyrirtæki, Hönnun og
ráðgjöf, í samstarfi við Svein
Jónsson á Egilsstöðum og
verkfræðifyrirtækið Hönnun
í Reykjavík. Fyrir-
tækið verður því tíu
ára í janúar á næsta
ári en það starfar
jafnframt á Egils-
stöðum og er með
útibú á Höfn á
Hornafirði. Einnig
á Hönnun og ráð-
gjöf hlut í tveimur
dótturfyrirtækjum
í Reykjavík og á
Akranesi. Starfs-
menn hjá fyrirtæk-
inu eru tuttugu.
- '■». f 1 '
•I
Fjarshipti shapa
VÖXt „Hönnun og
ráðgjöf hefur vaxið í
nokkrum stökkum i tengsl-
um við stórverkefni," segir
Jóhannes. „Hlutí afvextinum
er fólginn í öflugum fjarskipt-
um, þar sem við vinnum
mörg verkefni utan þessa
svæðis, en aðallega má segja
vöxturinn hafi fylgt þeim
breytingum sem sjávarút-
Jóhannes Pálsson verkfrœðingur og El-
ísabet Benediktsdóttir sparisjóðsstjóri.
„Hluti af vexti Hönnunar og ráðgjafar er
fólginn í öflugum fjarskiþtum. “
vegurinn gekk í gegnum
árin 1994 til 1996. Vegna auk-
innar eftirspurnar þurftum
við þá að íjölga starfsfólki
vegna vinnu við endurnýjun
á loðnuverksmiðjum og
loðnufrystingu. í dag er
stóra verkefnið vinna við ál-
versundirbúning hér á Reyð-
arfirði." BS
13