Frjáls verslun - 01.11.1999, Side 24
PflLL SIGURJÓNSSON MAÐUR ÁRSINS
segja upp mörgu fólki vegna þess að verkefnaskortur blasti við.
í þessari atvinnugrein er stundum rætt um sex mánaða dauða-
kúríuna svonefhdu, en hún merkir að sé verkefnastaðan teikn-
uð upp mánuð fyrir mánuð beygi kúrfan niður eftír hálft ár. En
svo rekur alltaf einhver verkefni á fjörurnar þannig að kúrfan
breytist, lyftíst. Það er afar erfitt að sjá mikið lengra fram í tím-
ann en eitt ár, kannski tvö ár, séu virkjanir eða önnur stórmann-
virki á döfinni. Að vísu huggaði það mig svolítið þegar fyrirlesari
frá danska iðnaðinum var hér á landi fyrir nokkrum árum og
sagði að byggingariðnaðurinn væri ekkert einn um að sjá aðeins
eitt ár fram í tímann og hafa ekki áskrift að tekjum, þannig væri
það í raun hjá yfir helmingi allra fyrirtækja.“
Miklar markaðsrannsóknir Markaðsrannsóknir eru ekki það
fyrsta sem fólki dettur í hug þegar það heyrir minnst á ístak.
Þar er hins vegar mikil vinna lögð í markaðsrannsóknir. I sjálfu
sér ætti það ekki að koma á óvart. Til að meta verkefnastöðuna
er rýnt fram í tímann og skimað yfir markaðinn. Hann er kort-
lagður og gert er nákvæmt yfiriit yfir þær framkvæmdir sem
kunna að vera á döfinni hjá fyrirtækjum og hinu opinbera. Það
metur síðan umfang þeirra og hvaða líkur séu á að fá þau þeg-
ar að útboðum kemur. Til þessa hefur fyrirtækinu vegnað vel í
útboðum, það er enda stærsta verktakafyrirtæki landsins.
Hvað lesið þið ístaksmenn út úr kortunum núna? A fyrir-
tækið eftir að vaxa á næstu árum eða blasir samdráttur við?
„Ég er bjartsýnn á næstu ár, ég hef ekki trú á öðru en að það
verði framhald á framkvæmdum og gerð stórra mannvirkja í
landinu. Velta okkar frá miðju síðasta ári og fram á mitt þetta ár
var um 4,5 milljarðar en var um 4,3 milljarðar sama tímabil árið
áður. Satt best að segja áttí ég ekki von á því að velta okkar yk-
ist árið eftír að við afhentum Hvalfjarðargöngin. Ég er þó ekki
frá því að velta okkar dragist eitthvað saman á allra næstu árum
- samt ekki mikið.“
Kemur tíl greina að breyta ístaki sem fyrirtæki? Sefja því
nýja stefnu sem fælist í að kaupa byggingalönd, teikna þau
og skipuleggja, fara út í það að byggja og selja?
„Það er ekki á döfinni. Við höfúm sáralítíð verið í því að byggja
og selja, sem svo er nefnt. Við komum þó að slíku verkefni á
Kirkjutúnslóðunum í samstarfi við annað verktakafyrirtæki, Álft-
árós. Það að kaupa byggingalönd og skipuleggja þau frá a tíl ö
krefst geysimikils fjármagns og víða erlendis hafa fyrirtæki farið
flatt áþvi- setíð uppi með íbúðir sem tekið hefur langan tima að
selja og lent fyrir vikið í hremmingum með fjármagnskostnaðinn.
Við erum fyrst og fremst byggingarfyrirtæki!"
Nú eruð þið þrír eigendur ístaks, þið Jónas Frímannsson
verkfræðingur eruð með 4% og Pihl í Danmörku með 96%
hlut Hafið þið íhugað að fjölga hluthöfum, gera félagið að al-
mermingshlutafélagi og skrá það á Verðbréfaþingi?
„Það stendur ekki tíl! Pihl í Danmörku er t.d. ekki á hluta-
bréfamarkaðnum þar. Þótt ómögulegt sé að segja tíl um hvað
framtíðin beri í skauti sér þá viljum við hafa sama háttinn á
áfram. Það hefur vissulega margt tíl síns ágætís að hafa félög
skráð á Verðbréfaþingi en því fylgja líka nokkrar skyldur og
kvaðir, t.d. þarf að tílkynna allt sem verið er að gera, allar breyt-
ingar, og allt sem til stendur að gera. Við höfum augljóslega
frjálsari hendur með núverandi fyrirkomulagi og það hefur enn-
fremur gefist vel.“
Ýmsir spyrja sig að þvi hvernig það sé að reka fyrirtæki
sem að mestu er í eigu erlends félags. Hefur það td. háð þér
á einhvern hátt í ákvarðanatöku?
„Ekki nokkurn skapaðan hlut. Við félagarnir, sem stofnuð-
um ístak með þeim feðgum Kay og Soren Langvad, höfum
fengið að reka fyrirtækið mjög sjálfstætt og á milli okkar hefur
verið einstakur vinskapur og trúnaður, og farsælt samstarf. Við
höfum raunar aldrei litið á þá feðga sem útlendinga, eða á ístak
sem erlent fyrirtæki þótt Pihl sé svo stór hluthafi. ístak er ís-
lenskt fyrirtæki, það er skráð á íslandi og lýtur sömu lögum og
reglum og önnur íslensk fyrirtæki. Þannig hefur það verið frá
upphafi, í nær 30 ár. Stofnandi Pihl, Kay Langvad, var giftur ís-
lenskri konu, Selmu Guðjohnsen, sem fædd var á Húsavik. Son-
ur hans og aðaleigandi fyrirtækisins núna, Soren Langvad, er
því hálfíslenskur. Hann ólst að hluta tíl upp á íslandi, tók hér
Feðgarnir Kay og Seren Langvad
□ ðdragandi að stofnun ístaks var
með þeim hættí að við lok Búr-
fellsvirkjunar, sem byggð var af
verktakasamsteypunni Fosskraftí en að
henni stóðu Almenna byggingafélagið,
sænska fyrirtækið Sentab og E.
Pihl&Sön, höfðu eigendur hins síðast-
nefnda, þeir feðgar Kay og Soren
Langvad, áhuga á því að halda áfram verk-
takastarfsemi á íslandi. í kjölfarið stofn-
uðu þeir ístak með fjórum íslendingum;
Páli Siguijónssyni, Jónasi Frímannssyni,
Einari Sigurðssyni og Gunnari Möller.
Tengsl þeirra feðga, Kay og Sorens,
við ísland má rekja allt tíl millistríðsár-
anna, þegar Kay Langvad, sem ungur
verkfræðingur, kom tíl íslands á vegum
dansks verktakafyrirtækis, Hojgárd og
Soren Langvad, aðaleigandi Pihl í Dan-
mörku. Hann er stjórnarformaður ístaks.
Schultz, tíl þess að starfa við Ljósafoss.
En hann átti síðar þátt í margvíslegri
mannvirkjagerð á íslandi, eins og Efri-
Sogsvirkjun sem reist var á árunum í
kringum 1959. Kay lést árið 1982 en var
kvæntur íslenskri konu, Selmu Guðjohn-
sen, sem fædd var á Húsavík. Soren,
sonur þeirra, fæddur árið 1924, ólst að
hluta tíl upp á íslandi, tók stúdentspróf
frá Háskóla íslands árið 1943 og fyrri-
hlutapróf í verkfræði frá sama skóla.
Kona hans Gunnvor er hálfíslensk.
Soren er aðaleigandi og forstjóri E.Pihl
&Sön, en fyrirtældð á núna 96% hlut í
ístaki á móti þeim Páli Sigurjónssyni og
Jónasi Frímannssyni. Soren er stjórnar-
formaður ístaks. Þess má geta að Páll
situr í stjórn Pihl í Danmörku. B!1
24