Frjáls verslun - 01.11.1999, Qupperneq 36
UM ÁRflMÓT
au um
Finnur Geirsson, framkvœmdastjóri Nóa-Síríusar og formaður Samtaka atvinnulíjsins:
Vonandi næst „mjúk lending"
að sem hefur fyrst og fremst ein-
kennt árið '99 er þensla á vinnu-
markaði. Það hefur reynst erfitt að
halda í fólk og þá sérstaklega frá því í
sumar. Það fylgir þessu ástandi að
launakostnaður hefur vaxið, sem gerir
samkeppni við innflutning erfiðari en
ella. Að öllu samanlögðu hefur sam-
keppnisstaðan gagnvart innflutningi
versnað frá því sem áður var,“ segir
Finnur Geirsson, framkvæmdastjóri
Nóa-Síríusar og formaður Samtaka at-
vinnulífsins.
- Horfurnar árið 2000?
„Það eru óneitanlega blikur á lofti og
ýmis hættumerki. Við vitum ekki ennþá
hvernig tekst til við að draga úr þenslu og
svo eru komandi kjarasamningar spurn-
ingamerki. Vonandi næst margumrædd
„mjúk lending" þannig að áfram verði
hægt að byggja upp á traustum grunni
stöðugleika í starfsumhverfinu. Það
stelhir hins vegar í hærra hráefnisverð,
þannig að sælgætisframleiðendur verða
að hafa sig alla við ef þeir eiga að halda
sínum hlut í þeirri hörðu samkeppni sem
hér ríkir á markaðinum." HO
Frosti Bergsson, stjórnarformaður Oþinna kerfa:
Frosti Bergsson
Mikill vöxtur tölvufyrirtækja
Sá vöxtur sem verið hefur undanfarin ár hjá tölvufyrirtækjunum hélt áfram á árinu
1999 og var um 25-30%. Skortur á tæknimenntuðu fólki, sérstaklega á hugbúnað-
arsviði, hamlar nú verulega íslenskum tölvufyrirtækjum. Þessi skortur takmark-
ar getu íslenskra fyrirtækja til að láta að sér kveða á erlendri grund en vaxandi áhugi
er á útrás íslensku fyrirtækjanna,“ segir Frosti Bergsson, stjórnarformaður Opinna
kerfa en fyrirtækið er meirihlutaeigandi í Skýrr og umsvifamill eigandi í tölvufyrir-
tækjunum Tæknivali, Aco og Teymi. „Þær miklu breytingar sem eru að verða
á fjarskiptamarkaðnum, Netið og farsímatæknin, eru að breyta verulega
umhverfinu sem við störfum í. Endurskoðun tölvukerfa með tilliti til
ársins 2000 einkenndi einnig árið 1999. Þetta var viðburðaríkt ár í
okkar atvinnugrein.“
-Horfurnar á árinu 2000?
„Eg tel horfurnar góðar fyrir árið 2000, það er að segja ég sé
fram á áframhaldandi 20-25% vöxt. Breytingar, sem eru að verða
í upplýsingatækninni, munu hafa veruleg áhrif á til dæmis alla
trygginga- og bankastarfsemi þannig að mikil þörf verður á
þjónustu þeirra fyrirtækja sem starfa á sviði upplýsingatækn-
innar. íslensk tölvufyrirtæki búa yfir mikilli þekkingu og ég tel
að við eigum fullt erindi inn á erlenda markaði. Við munum, að
mínu mati, sjá ýmis dæmi um sigra íslenskra fyrirtækja á
mörkuðum erlendis árið 2000.“ ffl