Frjáls verslun - 01.11.1999, Side 38
UMÁRAMÓT
Margeir Pétursson, framkvœmdastjóri MP verðbréfa:
Verðbólgudraugurinn ygglir sig!
Augu Ijárfesta opnuðust fyrir tækifærum í upplýs-
inga- og líftækni. Þeir urðu jafnframt tilbúnir til að
taka meiri áhættu en áður. Bankarnir juku útlán
sín afar mikið svo Seðlabankanum og erlendum sér-
fræðingum þótti nóg um. Verðbólgudraugurinn yggldi
sig eftir margra ára hvíld, landsmönnum til mikillar
hrellingar. Islenskir frumkvöðlar og athafnamenn
fengu byr í seglin á árinu,“ segir Margeir Pétursson,
framkvæmdastjóri MP-verðbréfa, en það fyrirtæki
stofnaði hann á árinu.
-Horfurnar á árinu 2000?
„Eftir mikla kaupmáttaraukningu þorra fólks
undanfarin ár er verðbólgan nú aftur mesta ógnin. Ung
og kraftmikil íslensk þekkingarfyrirtæki munu sækja
enn lengra fram og laða til sín metnaðarfullt starfsfólk
úr hefðbundnari atvinnugreinum og einnig erlendis
frá. Ef stjórnvöld sýna festu og aðhald í fjármálum rík-
is og sveitarfélaga, mismuna ekki atvinnugreinum og
standa vörð um frjáls viðskipti verður árið 2000 mjög
gott ár.“ B3
Hildur Petersen, framkvæmdastjóri Hans Petersen:
Stafræn tækni fékk aukinn byr
Góðæri ríkti í verslun á árinu og það snerti ljósmyndun eins og aðrar greinar. Staf-
ræn tækni kom meira inn í ljósmyndaiðnaðinn, fyrst og fremst tengd fyrirtækjum
en einnig hinum almenna neytanda sem er farinn að kynnast þessari tækni. Mögu-
leikar í vinnslu á myndum, breytingum, stækkunum og ýmiss konar útprentunum, jukust
talsvert," segir Hildur Petersen, framkvæmdastjóri Hans Petersen.
-Horfúrnar á árinu 2000?
„Stærstu ljósmyndafyrirtæki í heimi hafa gert áætlanir fyrir næsta ár og þau gera
ekki ráð fyrir samdrætti í hefðbundinni ljósmyndun þó að stafræn tækni komi sterkar
inn í myndina, bæði sem valkostur og viðbót. Filman er enn öruggasti og besti
geymslumiðillinn. Góðærið verður svipað og fyrirtækin fá mörg tækifæri. Sem dæmi
um nýjung geta viðskiptavinir komið með filmu og fengið myndir á geisladisk sem
er umvafinn notendavænu myndvinnsluforriti sem viðskiptavinurinn getur notað í
sinni eigin tölvu.“ SIi
Hildur Petersen
38