Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1999, Qupperneq 42

Frjáls verslun - 01.11.1999, Qupperneq 42
FLUGREKSTUR Flugið er öllum frjálst! Eða hvað? ón Karl Ólafsson, framkvæmda- stjóri Flugfélags Islands hf., er bjartsýnn á að félagið verði rek- ið á sléttu eða jafnvel með hagnaði á næsta ári. Miðað við forsöguna í innan- landsfluginu yrðu það stórtíðindi næðist það markmið! Jón Karl hefur unnið hjá Flugleiðum frá 1982, byijaði þar sem sumarmaður og fór svo í fullt starf eftir próf í viðskiptafræði frá Háskóla Islands. Hann hefur komið við i ýmsum deildum fyrirtækisins, hagdeild, viðhaldsdeild og kostnaðareftirliti og verið yfirmaður hag- deildar og ijárreiðudeildar og stýrt leiða- stjórnun í fyrirtækinu. Fyrir fimm árum varð hann svæðisstjóri Flugleiða í Evr- ópu með aðsetur í Frankfurt og segir að það hafi verið lærdómsríkt að vinna með jafn ólíkum þjóðum og Frökkum, Itölum, Þjóðverjum, Spánverjum og þjóðum Austur-Evrópu. I ársbyrjun 1999 tók Jón Karl við starfi framkvæmdastjóra Flugfé- lags Islands og hefur verið áberandi í ijölmiðlum vegna samskipta félagsins við samkeppnisyfirvöld. Samkeppnisyfirvöld Á ýmsu hefur gengið í samkeppninni við önnur flugfé- lög eftir að sérleyfin voru lögð niður í júlí 1997 og fyrirtækin hafa komist í fréttir öðru hvoru vegna þess, síðast í byrjun október þegar Flugfélag íslands vildi hefja eftirmiðdagsflug til Egilsstaða. „Eins og staðan er í dag er öllum frjálst að fljúga hvert sem þeir vilja, hvenær sem þeir vilja og hvernig sem þeir vilja - nema okkur,“ segir Jón Karl og er mjög ósáttur við að samkeppnisyfirvöld telji sig þurfa að „framleiðslustýra" fyrirtæk- inu, eins og hann kallar það. Hann segir afstöðu samkeppnisyfirvalda byggða á tvennu, annars vegar því að Flugfélag ís- lands hafi áður haft einokunaraðstöðu vegna sérleyfa og hins vegar því að félag- ið sé markaðsráðandi fyrirtæki. / Jón Karl Olafsson, fram- / kvæmdastjóri Flugfélags Is- lands, er afar ósáttur við að samkeppnisyfivöld telji sigpurfa að „framleiðslustýra “félaginu! Hann gerir sér vonir um að fé- lagið verði rekið á sléttu á næsta ári. „Ef um væri að ræða stórgróðafyrir- tæki með mikinn hagnað af rekstri þá gæti ég skilið að menn hefðu áhyggjur, en þessi rekstur hefur alltaf verið erfiður. Sérleyfunum fylgdu alls konar kvaðir, flug á smærri staði var í raun niðurgreitt með flugi á stærri staðina. Þetta er úrelt kerfi og það hefur verið lagt niður. Eg er ósammála því að það eigi að hafa áhrif á frjálsan markað í dag.“ Ekki markaðsráðandi „Hvað það varð- ar að við séum markaðsráðandi fyrir- tæki þá er ég því ósammála. Við skil- greinum okkur sem flutningafyrirtæki, sem þýðir að við erum að keppa við alla og allt, sem er á þeim markaði. Sam- kvæmt þessari skilgreingu erum við með innan við 30 prósenta markaðshlut- deild. Samkeppnisyfirvöld hafa hins vegar ekki viljað viðurkenna þessa skil- greiningu og vilja líta á flugmarkaðinn eingöngu. Þar erum við tiltölulega stór- ir. Ef við tökum allan flugmarkaðinn þá er markaðshlutdeild okkar í kringum 65 Fjölgun um 100 þúsund! „Ef við horfum á þróunina á milli 1995 og 1999 þá hefur farþegum í innanlandsflugi fjölgað frá 350 þús- und upp í 450 þúsund, eða um 100 þúsund farþega.“ prósent. Það er svipuð markaðshlut- deild og stærstu verslunarkeðjur á mat- vörumarkaði hafa og þar telja menn sig ekki þurfa að loka búðum eða banna mönnum að hafa opið á sunnudögum," segir Jón Karl og telur afar óeðlilegt í fijálsri samkeppni að rekstri fyrirtækis sé framleiðslustýrt. Vantar leikreglur „Ef það á að vera þannig þá verða leikreglurnar að liggja nákvæmlega fyrir en það gera þær ekki. Við vitum ekki hvernig við getum hagað okkur á þessum markaði fyrr en eftir á. Síðast bannaði Samkeppnisráð okkur að fljúga eftirmiðdagsflug til Egilsstaða. Það lá fyrir í ágúst að við ætluðum að fljúga þetta og það voru yfir 300 farþegar búnir að bóka sig í þessa ferð þegar þeir bönn- uðu flugið. Þetta náttúrlega gengur ekki. Það verður að liggja fyrir hvað má og hvað ekki,“ segir hann og bætir við að búið sé að kæra þennan úrskurð Sam- keppnisstofnunar til áfrýjunarnefndar. 240 starfsmenn Hjá Flugfélagi íslands starfa um 240 starfsmenn, þar af meiri- hlutinn í Reykjavik, eða um 180 manns. Af 60 starfsmönnum utan Reykjavíkur vinna um 40 á Akureyri. Hinir eru á ísa- firði, Egilsstöðum, í Veshnannaeyjum og á Hornafirði. Fyrirtækið veltir 1,7 millj- örðum króna á ári og er því eitt af 100 stærstu fyrirtækjum landsins. Það rekur 10 flugvélar, þrjár Fokker 50, sem eru með 50 sæti, þrjár 19 sæta Metro flugvél- ar, tvær Twin Otter vélar, sem eru með 19 sæti hvor, og tvær Chieftain níu sæta vélar. Flogið er frá Reykjavík til fimm staða en félagið er líka með áætlunarflug frá Akureyri til Grímseyjar, Vopnaijarðar, Þórshafnar og Egilsstaða auk þess sem það heldur uppi millilandaflugi frá Reykjavíkurflugvelli til Grænlands og Færeyja. 42
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.