Frjáls verslun - 01.11.1999, Blaðsíða 43
Jón Karl Olafsson hefur verið framkvæmdastjóri Flugfélags íslands íum eitt ár. Hann segir að árið 2001 verði reksturinn vonandi orðinn þannig
að hœgt verði að setja fyrirtækið á Verðbréfaþing. FV-Myndir: Geir Ólafsson
Er flugvélakostur félagsins eins og
ykkur hentar best?
„Fokker 50 eru mjög traustar vélar,
með bestu vélum sem hægt er að fá í flug
af þessu tagi. Við erum þegar að reyna að
selja Chieftain flugvélarnar og það er
gert ráð fyrir, að rekstur 19 sæta vélanna
muni minnka verulega á næstu árum.
Kostnaðurinn við rekstur þeirra hefur
hækkað mjög mikið og þessar vélar eru
almennt að hverfa af markaðnum. Eg sé
fyrir mér að fyrirtækið verði með tvær til
þijár tegundir flugvéla til lengri tíma litið,
annars vegar stærri 50-70 sæta vélar og
jafnvel smærri þotur, eða „regional jets“,
og hins vegar smærri vélar, og þá líklega
Twin Otter flugvélar sem geta sinnt sér-
verkefnum," segir Jón Karl. Sem dæmi
um sérverkefni má nefna það sem hann
kallar „ævintýraverkefni" í Grænlandi,
þar sem flogið er m.a. fyiir danska her-
inn, og auk þess alls kyns rannsóknar-
leiðangra til Norður-Grænlands. Upp úr
þessu er mikið að hafa og verkefnin
skemmtileg þannig að þeim verður hald-
ið áfram eins lengi og hægt er.
Ber innanlandsmarkaður stærri
flugvélar?
„Ef við horfum á þróunina á milli
1995-1999, þá hefur farþegum í innan-
landsflugi ljölgað frá 350 þúsund upp í
450 þúsund. Breytingar hafa átt sér stað
í ferðatilhögun, menn eru meira á ferð-
inni en áður og fara í fleiri og styttri ferð-
ir. Þetta á alls staðar við og það er ekkert
sem bendir til annars en að þessi þróun
haldi áfram. Rekstrarkostnaður við
stærri vélar verður alltaf minni á hvert
sæti en við minni vélar og þessi munur
er alltaf að aukast. Öryggisreglur í Evr-
ópu verða sífellt strangari sem kallar á
alls kyns viðbótartækjabúnað í litlu vél-
arnar. Það verður alveg jafn hagkvæmt
að fljúga stóru vélunum. Þegar markað-
urinn var gefinn frjáls árið 1997 flugu
43