Frjáls verslun - 01.11.1999, Síða 48
FJÁRMÁL
Peningaparadís
á Guernsey?
Landsbankinn og Landsbréfhafa í sameiningu stofnað dótturfyrir-
tœki á Guernsey, eyju á Ermarsundi. Þar eru 76 erlendir bankar
og um 380 verðbréfasjóðir!
Eftir Vigdísi Stefánsdóttur
Landsbankinn og Landsbréf hafa í
sameiningu stofnað dótturfyrirtæki á
Guernsey, eyju á Ermarsundi, og inn-
an þess félags sett upp verðbréfasjóð. Sá
hefur hlotið nafnið Landsbanki PCC
(Guernsey) ltd. og skiptist núna í þrjár
deildir; Fortuna 1, 2 og 3. „Astæða þess
að Guernsey var valin sem bækistöð fyr-
ir sjóðina er meðal annars sú að þar ríkir
mikil reynsla í rekstri fjármálafyrir-
tækja,“ segir Sigurður Atli Jónsson, for-
stjóri Landsbréfa.
„Fjármálaeftirlit er mjög traust og
bankaleynd afar rík. Samið var við HSBC
bankann um að annast daglegan rekstur
sjóðanna og dótturfélagsins. HSBC
(Hongkong and Shanghai Banking Cor-
poration) er ein stærsta fjármálasam-
steypa heims. Reksturinn er mjög hag-
kvæmur og við getum veitt viðskiptavin-
um okkar víðtæka þjónustu í gegnum
dótturfyrirtæki okkar í Guernsey. Við
fórum af stað með skipulögðum hætti og
vissum hvert við vildum stefna. Fortuna
sjóðirnir eru sjóðasjóðir (e. fúnd of
funds) sem þýðir að í stað þess að sjóð-
irnir fjárfesti í einstökum fyrirtækjum,
ljárfesta þeir í öðrum verðbréfasjóðum."
Vaxið um þrjá milljarða á ínnan við ári
Sigurður Atli segir styrkleika Fortuna
sjóðannna liggja í því að ráðstafa fjármun-
um milli landsvæða og atvinnugreina og
dreifa áhættunni á þann hátt. „Við höfum
valið að fjárfesta að mestu hjá fjórum al-
þjóðlegum sjóðafyrirtækjum: Alliance
Capital Management (ACM), Fidelity,
HSBC Asset Management og Merrill
Lynch Mercury. Við höfum um nokk-
urra ára skeið haft umboð fyrir sjóða-
stjórnunarfyrirtækið ACM sem rekur
fjölda erlendra verðbréfasjóða sem við
seljum áfram til okkar viðskiptavina. Fyr-
irtæki sem starfa á þessum markaði eru
með skrifstofur um allan heim og hafa að-
gang að fyrirtækjum sem þeir kjósa að
fjárfesta í. Við, sem erum að byrja að
fikra okkur inn á þessa braut, teljum
skynsamlegra að nýta okkur styrkleika
þessara alþjóðlegu fyrirtækja i stað þess
að fara strax út í beina samkeppni við
þau. A Islandi er hins vegar fjárfest í sjóð-
um Landsbréfa. Fortuna sjóðirnir eru
þegar orðnir mikilvægur þáttur í fjárfest-
ingum viðskiptavina okkar, einkum á
sviði fjárvörslu og sérbankaþjónustu.
Viðtökurnar hafa verið framar vonum, en
sjóðirnir hafa á innan við einu ári vaxið í
um 3 milljarða króna,“ segir Sigurður
Atli.
Fylgst með fjárfestingum .Aðferðafræð-
in við að velja sjóðastjórnunarfýrirtæki
°g fylgjast svo með því sem þau eru að
gera er nokkuð þekkt fræðigrein innan
fjármálafræðinnar og þá aðferðafræði
erum við að nýta okkur. Kannað er hvar
styrkur sjóðsstjóranna liggur, árangur
þeirra er greindur og athugað hvort
sjóðsstjórar fylgja eftír yfirlýstri fjárfest-
ingastefnu. I þessu liggur sá virðisauki
sem við, sem sjóðastjórnendur Fortuna
sjóðanna, erum að koma til okkar fjár-
festa. Við teljum okkur hafa nægjanlegan
styrk í þeirri samkeppni sem fyrir er, en
hún felst fyrst og fremst í því að greina
upplýsingar, gera góðar áætlanir og spár.
Þegar fram líða stundir munu íslenskir
fjárfestar ekki síður leita tíl útlanda eftir
góðum sjóðum og við þurfum að vera til-
Nafnávöxtun
1.1. ‘99-1.12. 99
Fortunal: 26,2%
Fortuna 2: 25,3%
Fortuna 3: 42,9%
Það kostar 2% af fjárfestingunni í
upphafi að fjárfesta í Fortuna sjóðun-
um. Lægsta fjárfesting er 100 þúsund
krónur í fyrsta sinn og svo er hægt að
bæta við að lágmarki 40 þúsund
krónum eftir það.
búnir tíl að veita jafngóða þjónustu og
aðrir á alþjóðlegum markaði."
Til að fylgjast sem best með fram-
vindu sjóðanna voru þeir strax skráðir í
alþjóðlegan samanburð hjá Standard &
Poor's Micropal sem er stærsta matsfyr-
irtæki í heimi fyrir verðbréfasjóði. Það
metur um 40 þúsund sjóði um allan heim
og skiptír þeim upp í flokka eftír starf-
semi. Landsbankinn og Landsbréf fá
þannig vikulegt yfirlit um stöðu sjóðanna
gagnvart keppinautum og segir Sigurður
Atli árangurinn hingað tíl hafa farið fram
úr björtustu vonum. „Tímabilið er að vísu
stutt, svo allra fyrirvara sé gætt, en við
erum afskaplega ánægð með árangurinn
og ljóst að Fortuna sjóðirnir eru með
48