Frjáls verslun - 01.11.1999, Page 89
FOLK
□ ormóður Jónsson er
framkvæmdastjóri
auglýsingastofunnar
Fíton og er jafnframt eigandi
hennar að 50%. „Ég kom
fyrst að þessu fyrirtæki fyrir
einu og hálfu ári. Það eru
tæplega ijögur ár síðan aug-
lýsingastofurnar Grafít og
Atómstöðin sameinuðu
krafta sína og úr varð auglýs-
ingastofan Fíton,“ segir Þor-
móður.
„Við sameininguna gekk
Fíton inn í Samband Is-
lenskra auglýsingastofa og
er í dag meðal stærstu aug-
lýsingastofa á landinu. Fíton
hefur nær þrefaldað starf-
semi sína á þessum tæpu
ljórum árum og uppgangur
Þormóður Jónsson er framkvæmdastjóri auglýsingastofunnar Fíton.
Þormóður Jónsson, Fíton
hennar verið mikill á þessum
h'ma. Meðal fyrirtækja sem
Fíton þjónar eru Tal, Búnað-
arbankinn, Sól-Víking, SS,
Sýn, Kjörís, Aco, Opin kerfi
og Honda umboðið. Það rík-
ir mikil samkeppni á auglýs-
ingamarkaðnum og við hjá
Fíton höfum staðið okkur
ágætlega í þeim átökum. Það
kemur okkur að góðu að
menn leggja meira upp úr út-
liti fyrirtækja í dag og leggja
meiri peninga í þann þátt fyr-
irtækjanna. Eflaust á hinn sí-
stækkandi verðbréfamarkað-
ur töluverðan þátt í þeirri
þróun.“
Umsvif auglýsingastof-
unnar Fíton eru nú orðin það
mikil að hún þarf að flytja sig
um set í stærra húsnæði.
„Fíton hefur haft aðstöðu í
Austurstræti 16 en okkur
bauðst nýverið að kaupa hús
í Garðastræti. Við flytjum
starfsemi okkar þangað í
byrjun nýs árs ásamt öðru
nýstofnuðu fyrirtæki, Atóm-
stöðinni, sem var stofnað
seinni hluta árs 1999. Það er
tölvufyrirtæki sem mun
starfa sjálfstætt í vefum-
hverfi."
Þormóður telur að mark-
aðsmál muni tengjast mjög
tölvum í ffamtíðinni og að
andlit fyrirtækja muni í
auknum mæli birtast á tölvu-
skjám. „Atómstöðin er sam-
vinnuverkefni Fítons og fyr-
irtækisins Hiper sem meðal
annars hefur verið í verkefn-
um fyrir Morgunblaðið, Vífil-
fell, Vatnsveituna og Ný-
kaup. Það er gaman að segja
frá því hvernig nafn Atóm-
stöðvarinnar rak aftur á Ijör-
ur okkar. Nýja húsnæðið í
Garðastrætinu var einmitt
notað í kvikmyndinni Atóm-
stöðin á sínum hma. Okkur
fannst mjög skemmtilegt að
nota þannig nafnið aftur
enda hentar það mjög vel
þessu nýja tölvufyrirtæki.
Fíton á 35% í Atómstöðinni,
Hiper 35% og 30% verða hjá
fjárfestum."
Þormóður er fæddur 27.
febrúar 1961 og eyddi æsku-
árum sínum í Vogunum.
„Það gefur augaleið að ég er
Þróttari. Að lokinni skóla-
göngu í Vogaskólanum lá
leið mín í Armúlaskólann
þaðan sem ég tók stúdents-
próf. Eftir stúdentspróf fluh-
ist ég búferlum dl Danmerk-
ur þar sem ég stundaði við-
skipta- og markaðsfræðinám
í Handels Höjskole. Dvöl mín
í Danmörku náði yfir 6 ára
tímabil og ég stundaði ýmis
störf samhliða námi mínu
síðustu árin. Ég var með við-
skiptaþjónustufyrirtæki; setti
meðal annars upp salhisk-
verksmiðju fyrir íslenska að-
ila og var einnig í viðskiptum
með flutning á fiski með
flugi. Það munaði ekki miklu
að ég ílentist í Danmörku í
störfum mínum þar en ég
ákvað að koma heim hl ís-
lands og sé ekki eftir þeirri
ákvörðun."
Eftir að Þormóður kom
aftur hl landsins hóf hann
störf hjá Eimskipafélagi Is-
lands og var þar í 2 ár, 1990-
92. „Þaðan lá leið mín inn í
útvarpsstöðina Aðalstöðina,
en bróðir minn hafði keypt
hana. Ég keypti 50% hlut í
stöðinni og rak hana alveg
fram að því að hún sameinað-
ist FM 95,7. Þá seldi ég minn
hlut, árið 1998, og í sama
mánuði keypti ég 50% hlut í
Fíton.
Eiginkona mín er Sigríður
Garðarsdóthr, en við kynnt-
umst hér heima eftir að ég
kom heim úr námi í Dan-
mörku. Sigríður er einnig úr
Vogunum, eins og ég. Við
hjónin eigum þrjú börn, Sig-
rúnu, 12 ára, Pétur Óla, 11 ára
og Baldvin, 6 ára. Frítími
minn nýhst mér best á sumr-
in en þá eyði ég eins miklum
hma og ég get í laxveiði. Ég
er einnig að fikta örlíhð við
golfið en laxinn hefur verið
mitt aðal áhugamál. Hand-
bolönn áth á árum áður hug
minn allan en hann hefur
þurft að vikja fyrir öðru. Vet-
urinn er álagstími í mínu
starfi og það hentar mér vel
að geta sinnt áhugamálum
mínum á sumrin þegar minna
álag er á vinnustað." 35
89