Frjáls verslun - 01.11.1999, Síða 90
Ólöf Árnadóttir, framkvœmdastjóri auglýsingastofunnar P&Ó.
FV-mynd: Geir Olafsson
Olöf Arnadóttir, P&O
□ uglýsingastofan
P&Ó er nú orðin 14
ára gömul, en hana
stofnaði ég ásamt eigin-
manni mínum, Pétri Hall-
dórssyni, árið 1985. Helstu
stefnumál fyrirtækisins eru
að bjóða almenna auglýs-
ingagerð og að aðstoða fyrir-
tæki, stofnanir og félagasam-
tök við stefnumótun í auglýs-
inga- og kynningarmálum.
Einnig að stuðla að áreiðan-
legu og heiðarlegu upplýs-
ingastreymi í viðskiptum og
vera ffamúrskarandi í allri
hönnun," segir Ólöf Árna-
dóttir, framkvæmdastjóri
auglýsingastofunnar P&Ó.
„Mitt hlutverk er að vera
tengiliður við viðskiptavini
og að aðstoða þá við stefnu-
mörkun í auglýsinga- og
kynningarmálum. Að auki er
ég hugmyndasmiður og
hönnuður."
Skammstöfunin P&Ó
stendur fyrir Pétur Halldórs-
son og Ólöf. Samstarfsfólk
þeirra eru Áslaug Ágústs-
dóttir fjármálstjóri og Ragnar
Blöndal, hugmyndasmiður
og textahöfundur.
Helstu viðskiptavinir
P&Ó eru: Verðbréfaþing ís-
lands, Haraldur Böðvarsson
hf., Thorarensen Lyf, forsæt-
is-, utanríkis-, sjávarútvegs-,
fjármála-, menntamála- og
dóms- og kirkjumálaráðu-
neytið, Rafiðnaðarsamband
Islands, Vélstjórafélag Is-
lands, Strætisvagnar Reykja-
víkur, Ferðaskrifstofa ís-
lands (ráðstefnudeild), Rikis-
útvarpið (Langbylgja), Stíga-
mót og Móðir Jörð og lífræn
ræktun, Vallanesi.
„P&Ó hefur alltaf verið í
fremstu röð hvað varðar
glæsilega hönnun og fagleg
vinnubröð í auglýsingagerð
og hefur hlotið fjölda verð-
launa og viðurkenninga á
innlendum og erlendum vett-
vangi. P&Ó var tilnefnt til
menningarverðlauna DV fyr-
ir hönnun á merki og útliti
gagna Verðbréfaþings Is-
lands og hönnun á nýju útliti
bréfgagna ráðuneytanna,"
segir Ólöf.
Foreldrar Ólafar eru Ólöf
Guðný Geirsdóttir, húsmóðir
og hannyrðakona, og Árni
Brynjólfsson, fyrrverandi
framkvæmdastjóri Lands-
sambands rafverktaka og
einn af stofnendum Athafna-
hóps aldraðra. Ólöf Árna-
dóttir er fædd á Hallveigar-
stígnum í Reykjavík árið
1954. Bernsku- og unglings-
árunum varði hún á Rauða-
læknum. Ólöf varð í tvígang
íslandsmeistari stúlkna í
golfi og þótti hafa afar fagra
sveiflu.
Ólöf hóf nám í Myndlista-
og handíðaskóla Islands í
auglýsingadeild að loknu
skyldunámi. Hún útskrifað-
ist árið 1974 og síðar lagði
hún stund á framhaldsnám í
Middlesex University árin
1975-76 við grafíska hönnun
og auglýsingagerð. Að loknu
námi réð Ólöf sig til starfa
árið 1976 hjá Grafík og hönn-
un (síðar Gylmir) en árið
1979 réðst Ólöf til starfa á
Auglýsingastofu Ólafs Steph-
ensen. Ólöf hefur unnið tölu-
vert að félagsmálum, verið
prófdómari við MHI og sinnt
ýmsum dómnefndarstörfum
sem tengjast faginu.
Eiginmaður hennar er
Pétur Halldórsson og þau
hjónin eiga eina dóttur,
Brynju Pétursdóttur, 15 ára.
„Áhugamál mín mótast að
mestu af því að njóta augna-
bliksins í návist fjölskyldunn-
ar og vina. Eg legg einnig
ríka áherslu á að njóta lista,
andlegra málefna og að
stunda líkamsrækt." 35
90