Frjáls verslun - 01.05.2000, Blaðsíða 26
Teikning af skúmum í Samtúm þar sem Jón Júlíusson hóf verslunarrekst-
urárið 1960.
sá áherslumunur var um það hverjir ættu að leiða fyrirtækið
áfram eftir að KEA og Kaupfélag Suðurnesja kæmu að félaginu í
framtíðinni en við það hefði hlutur Nóatúnsfjölskyldunnar ekki
dugað til að vera ráðandi í félaginu og hún ekki stjórnað því. Fjöl-
skyldan spurði sig þá að því hvort ekki væri alveg eins gott að
selja öll bréfin í stað þess að vera í minnihluta í fyrirtækinu í fram-
tíðinni, jafnvel með um 20 til 30% hlut í það heila, og ráða ekki
ferðinni. Hugmyndin um að selja fékk vaxandi byr og úr varð að
EFA bauð í öll hlutabréf í Kaupási fyrir milligöngu íslandsbanka
F&M. A margan hátt getur Nóatúnstjölskyldan hrósað happi yfir
að fá tilboðið frá EFA því afar fáir kaupendur væru ella að hlut
þeirra - enda um miklar fjárhæðir að ræða. Nóatúnsfiölskyldan
fær í sinn hlut um 2,3 milljarða króna við söluna og mun áfram
eiga þær fasteignir sem verslanir Nóatúns verða áfram í og fá af
þeim leigutekjur. Nóatúnsfjöiskyldan er því í hópi efnuðustu fjöl-
skyldna landsins.
Ehki fyrstu kaup EFfl á matvörukeðju Kaup EFA á öllum hluta-
bréfum í Kaupási eru ekki fyrstu kaup þess í matvörukeðju.
EhA eignaðist um tíma 35% hlut í Vöruveltunni hf. sem rak 10-
11 verslanakeðjuna. Það mál var allt nokkuð sérkennilegt. Það
hófst á því að í október 1998 var verslanakeðjan 10-11 seld
Kaupfélagi Eyfirðinga, KEA, á um 900 milljónir króna. Áður en
formlega var gengið frá kaupunum hættu aðaleigendur Vöru-
veltunnar, hjónin Eiríkur Sigurðsson og Helga Gisladóttir,
skyndilega við að selja KEA enda aðrir þá farnir að bera víurn-
ar í fyrirtækið. í kjölfarið, hinn 11. nóvember 1998, keypti EFA
ásamt Landsbréfum, Lífeyrissjóðnum Lífiðn, auk nokkurra fyr-
irtækja, þeirra á meðal fjárfestingarfélagsins Fjárfars, 70% hlut
í Vöruveltunni af þeim Eiríki og Helgu fyrir milligöngu íslands-
banka. Hlutur EFA var stærsti einstaki hluturinn, eða 27,14%.
Til viðbótar tók Islandsbanki að sér sölu á 5% eignarhlut á al-
mennum markaði í dreifðri sölu. Eftir þessa sölu áttu hjónin Ei-
ríkur og Helga áfram um 25% í félaginu. Miðvikudaginn 28.
apríl í fyrra keypti EFA 7,86% hlut til viðbótar við þau 27,14%
sem það átti fyrir í Vöruveltunni
af aðilum á vegum Landsbréfa
og Lífeyrissjóðsins Lífiðnar.
Sama dag, í beinu framhaldi af
kaupunum, seldi EFA síðan all-
an hlut sinn, 35%. Það var ís-
landsbanki F&M sem hafði milli-
göngu um þessa sölu. Áður en
Baugur keypti 10-11 keðjuna
höfðu hjónin Eiríkur Sigurðsson
og Helga Gísladóttir, aftur eignast
70% í félaginu, í eigin nafrii og
Fjárfars sem þá var í eigu þeirra
og fleiri aðila. íslandsbanki og
Kaupþing áttu 12,5% hvor aðili og
24
5% voru í eigu fyrirtækisins sjálfs. Baugur keypti síðan Vöru-
veltuna, 10-11 keðjuna, á rúmar 1.500 milljónir króna.
Samkaup Stefnan hjá EFA er að stækka Kaupás með því að
fá KEA, með dótturfélag sitt, Matbæ hf., og Kaupfélag Suður-
nesja, með dótturfélagið Samkaup hf., inn og ná upp fyrirtæki
sem veltir yfir 20 milljörðum á þessu ári. Samkaup hf. er í
eigu Kaupfélags Suðurnesja að stærstum hluta en það á um
87% í félaginu en starfsmenn og félagsmenn afganginn, eða
13%. Velta Samkaupa á árinu 1999 var yfir 3 milljarðar króna
og er áætluð um 3,5 milljarðar á þessu ári. Samkaup hf. rek-
ur tólf matvöruverslanir - stórmarkaði sem hverfaverslanir;
Samkaup í Njarðvík, Grindavík, Hafnarfirði, ísafirði og í Vest-
urbergi í Reykjavík og síðan Sparkaup í Sandgerði, Garði,
Bolungarvík og Suðurveri í Reykjavík. Þá rekur fyrirtækið
Kasko í Keflavík og Verslunina Faxabraut 27 í Keflavík. Kjöt-
vinnsla Samkaupa heitir Kjötsel. Þær verslanir sem reknar
eru undir heitinu Samkaup eru stórmarkaðir, Sparkaup eru
hverfaverslanir og Kasko í Keflavík er lágvöruverðsverslun
líkt og Bónus hjá Baugi.
IVIatbær KEA er með alla matvörusölu sína núna hjá dóttur-
félagi sínu, Matbæ hf. Það tók til starfa um síðustu áramót og
rekur sautján matvöruverslanir á Norðurlandi og höfuðborgar-
svæðinu. KEAkeypti snemma á síðasta ári verslunardeildina af
KÞ, Kaupfélagi Þingeyinga, skömmu áður en það fornfræga fé-
lag fór í nauðasamninga. Um var að ræða þrjár verslanir hjá
KÞ. Velta matvörusölu KEA á síðasta ári var rúmir 4 milljarðar
króna og stefnir í 5 milljarða á þessu ári. Matbær hf. rekur
núna stórmarkaðinn Úrval við Hrísalund á Akureyri, afsláttar-
keðjuna Nettó við Óseyri 1 á Akureyri, Nettó Kost, sem er sala
til skipa og mötuneyta, Nettó í Mjódd í Reykjavík og Nettó á
Akranesi. Þá rekur Matbær hf. tólf verslanir undir heitinu
Strax; tvær á Akureyri, þrjár í Kópavogi og eina í Hrísey, á
Ólafsfirði, Húsavík, í Grímsey, á Dalvík, Siglufirði og í Reykja-
hlíð við Mývatn. Þetta eru svonefndar hverfaverslanir.
EFfl, Eignarhaldsfélagið Alhýðubanhinn EFA Eignarhaldsfé-
lagið Alþýðubankinn hf., er eitt fárra félaga hérlendis sem hafa
sérhæft sig í áhættu fjárfestingum og hefur félagið lagt áherslu
á að kaupa hlutabréf í félögum sem ekki eru skráð á Verðbréfa-
þingi íslands með það að markmiði að auka verðmæti slíkra fé-
lega með því að Ieggja til áhættufé og nýja þekkingu á rekstri
og stjórnun fyrirtækja. Um 1.300 hluthafar eru núna í EFA.
Rekja má uppruna EFA til
stofnunar Sparisjóðs Alþýðu árið
1967 sem breytt var í Alþýðubank-
ann árið 1970. Bankinn var rekinn
sem sem almennur viðskipta-
banki til ársloka 1989, en þá tók
hann þátt í sameiningu fjögurra
banka undir heitinu íslands-
banki. Á árinu 1995 lagði stjórn
Eignarhaldsfélagsins til að hlutur
félagsins í íslandsbanka yrði
minnkaður en aukin þess í stað
hlutaijárkaup í fyrirtækjum sem
ekki væru skráð á Verðbréfa-
þingi. Það er nú heldur betur
komið á daginn. HQ
jtærstu hluthafar í EFA
Sameinaði lífeyrissjóöurinn
Lífeyrissjóöurinn Lífiðn
Verslunarmannafél. Rvíkur
Lífeyrissjóöur verslunarmanna
E,ling .
Rafiðnaðarsambandið
Lífeyrissjóöur Austurlands
Lífeyrissjóðurínn Framsýn
Alþýöusamband íslands
Félag járniðnaðarmanna
__i Qnn aArír hluthafar
14,92%
9,54%
7,53%
7,36%
6,53%
5,46%
5,05%
4,93%
3,67%
3,67%
mo/. hlnt