Frjáls verslun - 01.05.2000, Blaðsíða 39
í\nsun retursáotur, jorsioouniaöur rjarstyrmgar hja Kaupþtngt, asamt börnum sínum, Sonju Jónsdóttur, átta ára, og Sindra Jónssyni fjögurra
ara. „Markaðunnn er að taka orum breytmgum sem mér finnst gaman að taka þátt í og mérgengur vel að samrœma þetta Íölskyldulífi "
Starfið er mjög lifandi
Þegar ég hafði lokið námi vann
ég við afleiðuviðskipti hjá
Statoil í Noregi. Eftir að ég flutti
heim var hér mjög takmarkaður
markaður með afleiður. Eg vann við
verðbréfamiðlun hjá VIB til að byrja
með en færði mig svo yfir í gjaldeyr-
is- og afleiðuviðskipti. Afleiðuvið-
skipti ná til allra þátta fjármálamark-
aðarins, eins og t.d. verðbréfa, gjald-
eyris og vaxta, og má segja að mesta
þróunin og nýjungarnar á þessum
markaði séu í afleiðuviðskiptum. ---------
Fjármálafræðin hefur alla tíð heillað mig og því finnst mér
mjög spennandi að starfa við afleiðuviðskipti og taka þátt í
þeirri þróun sem er að eiga sér stað. Starfið er mjög lifandi og
ekki vantar ögrunina," segir Kristín Pétursdóttir, forstöðu-
maður Fjárstýringar hjá Kaupþingi.
Störf í Fjárstýringu hafa verið eftirsótt af körlum en þær
eru fáar konurnar sem hafa starfað í slíkum viðskiptum og
fáar sækja um störf í afleiðu- og gjaldeyrisviðskiptum.
Þannig eru sjö starfsmenn í Fjárstýringunni hjá Kaupþingi,
þar af eru tvær konur. Kristín segist ekki velta því mikið fyr-
ir sér hversu fáar konur séu á viðskiplagólfinu. „Það skiptir
mig mestu máli að vinna með faglega hæfu fólki og fólki sem
hefur metnað til að standa sig vel og þá skiptir ekki máli
hvort viðkomandi er karl eða kona, en vissulega væri ekki
Starf í afleiðudeild jjármálafyrirtækis er
tvímœlalaust karlastarfí reynd og þær
erufáarkonurnarsem starfa við eða
sækja um slíktstarf Kristín Pétursdóttir
lét þetta þó ekki hafa nein áhrifá sigþeg-
ar hún ákvað að sérhæfa sig í afleiðuvið-
skiþtum í MBA námi. Hún er núfor-
stöðumaður Fjárstýringar hjá Kaupþingi.
verra að hafa fleiri konur í þessum
geira,“ segir hún.
Bjartsýn á markaðinn Mikil gróska
er í afleiðuviðskiptum, markaðurinn
verður stöðugt dýpri og afurðirnar
stöðugt þróaðri. Kristín lítur björtum
augum á markaðinn og telur að þessi
hluti eigi eftir að vaxa ört á næstu
árum. „Hvað kynjaskiptinguna varðar
eru þónokkrar konur komnar inn á
þessa línu í háskóla en þær skila sér
þó fáar út á markaðinn. Karlmenn eru
í miklum meirihluta þeirra sem óska eftir störfum í þessum
geira. Eg rekst því miður varla á umsókn frá konu um störf
sem tengjast afleiðu- og gjaldeyrisviðskiptum. Ég veit ekki al-
veg hvað veldur, kannski er þetta spurning um kjark því störf
í framlínu ljármálafyrirtækja hafa hingað til verið hefðbundin
karlastörf þó að konur geti sinnt þessum störfum jafn vel.“
- Hvaða augum lítur þú þína framtíð; verðurðu í þessu tíl fram-
tíðar?
„Ég á fjölskyldu, tvö lítil börn - átta og fjögurra ára - og er
búin að vera í þessu í fimm ár. Ég ætla að halda því áfram.
Mér finnst þetta mjög spennandi svið. Markaðurinn er að
taka örum breytingum sem mér finnst gaman að taka þátt í
og mér gengur vel að samræma þetta fjölskyldulífi." [£]
37