Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.2000, Side 49

Frjáls verslun - 01.05.2000, Side 49
BÆKUR auki tapað milljónum dollara sem hann átti í hlutabréfaíviln- unum í Wang-fyrirtækinu. Þarna stóð Chambers á tímamótum, 42 ára gamall. Mikið umrót var á tölvumarkaðnum á þessum tíma og atvinnutæki- færi ekki á hverju strái. Chambers sendi út fjölda bréfa til ým- issa fyrirtækja en fékk lítil viðbrögð í heilan mánuð. Þá frétti hann af stöðu hjá Cisco og sótti um. Það eru margir hamingju- samir milljónamæringar og ánægðir viðskiptavinir í dag sem þakka fyrir að stjórn Cisco ákvað að ráða John Chambers. Þrennt sem hann leggur áherslu á Chambers telur það hins vegar gæfu sína að hafa gengið í gegnum þessa erfiðleika. Hann hafi lært mun meira á þessum þrengingartímum en af þeim verkum sem hafa gengið vel. Það er því þrennt sem hann leggur áherslu á hjá Cisco. I fyrsta lagi að viðskiptavinurinn verði alltaf að vera í fyrirrúmi. I öðru lagi að komast hjá því eft- ir ffemsta megni að segja upp fólki. Og í þriðja lagi að fylgjast vel með tæknibreytingum og aðlagast þeim en ekki að berjast gegn þeim eins og IBM og Wang gerðu. Ekki voru þó allir sem fögnuðu komu Chambers í fyrirtæk- ið. Cisco var á þessum tíma mjög tæknilega rekið fyrirtæki og töldu margir yfirmenn fyrirtækisins að í forsvari yrði að vera tæknimenntaður maður. Chambers var þó fljótur að yfirstíga þessa erfiðleika enda eru mannleg samskipti, hvort sem er við tækni- eða markaðsfólk, ein af hans sterkustu hliðum. Nú lítur fyrirtækið fyrst og fremst á sig sem sölu- og markaðsfyrirtæki með tækniþekkingu í fararbroddi. Chambers er mikill keppnismaður og segir kinnroðalaust án nokkurrar hæðni eða drambs að Cisco ætli sér að verða besta fyrirtæki í heimi og að það ætli sér að breyta heiminum. Chambers vekur hjá öllum starfsmönnum þetta keppnis- skap og þegar hann mætir í vinnuna á morgnana segir hann: „Er ekki gaman hjá okkur í vinnunni? Við ætlum að ná ár- angri í dag enda skiptir það máli hvað við erum að gera.“ Fyrirtæki heypt fyrír ClSCO-dOllara Starfsmannaveltan hjá Cisco er mjög lítil, enda er það stefna fyrirtækisins að umbuna starfsmönnum fyrir árangur og það hefur gert marga starfs- menn fyrirtækisins að margmilljónamæringum. Mikið er lagt upp úr hópvinnu en þegar kemur að stórum ákvörðunum er það þó alltaf Chambers sem á síðasta orðið. Það er einkum tvennt sem hefur fleytt Cisco á toppinn: Hinn mikli vöxtur í Internetnotkun á undanförnum árum og svo mjög grimm kaup fyrirtækisins á samkeppnis- og samstarfsaðilum. Á undanförnum árum hefur Cham- bers keypt hvorki fleiri né færri en 55 fyrirtæki sem hann hefur talið að bætt gæti við samkeppnisforskot fyrirtækisins. í maí í fyrra keypti hann meðal annars tveggja ára gamalt fyrirtæki, Cerent, á hvorki meira Andrés Pétursson, sem starfar sem alþjóðaráð- gjafi hjá IMG-Ráðgarði, skrifar hér um bókina Making the CISCO conn- ection. The story behind the real Internet Super- power. Hann segir bókina auðlesna og pví upplagt að taka hana með sér í sumarfríið. FV-myndir: Geir Olajsson hverjum „tölvunörðum“ í litlu bílskúrsfyrirtæki sem eru að hanna nýjan hugbúnað fyrir Netið. Samt sem áður hefur ferill Chambers ekki alltaf verið dans á rósum. Á yngri stigum barnaskóla gekk honum ekki vel að læra og síðar kom í ljós að hann var með lesblindu. Með mik- illi einbeitingu og kappi tókst honum að læra að lifa með þess- ari fötlun. Enn þann dag í dag er Chambers þó illa við að lesa mikið og vill miklu fremur fá munnlega en skriflega skýrslu frá undirmönnum sínum. Hann hefur stálminni og man nánast allt sem honum er sagt. HÓf ferilinn hjá IBW Chambers hóf störf hjá IBM sem sölumaður eftir að hann lauk MBA-námi árið 1977. Þar starfaði hann í átta ár og segist hafa lært mikið á því. Þó mislíkaði honum hið stirða kerfi fyrirtækisins þar sem all- ar ákvarðanir voru mjög mið- stýrðar. Hann söðlaði því um og gerðist sölustjóri hjá Wang, tölvufyrirtæki. Þar gekk hann í gegnum erf- iðasta skóla lífs síns þeg- ar hann þurfti árið 1990 að skera niður sölu- deild fyrirtækisins og segja upp fjölda manns. í byrjun árs 1991 var Chambers búinn að fá nóg, sagði upp, stóð uppi atvinnu- laus og hafði þar að Cisco
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.