Frjáls verslun - 01.05.2000, Blaðsíða 62
FYRIRTÆKIN fl NETINU
Skýrar myndir
Vefverslanir eru drifnar
áfram af aðdáunarverðum
krafti og áhuga fremur en
fjármagni á Islandi í dag enda
eru þær litlar og veikburða - rétt
að byrja að stíga fyrstu skrefm.
Yfirleitt er uppbygging veijanna
í góðu lagi, þeir eru skýrir og
aðgengilegir og það er hrein-
lega ótrúlegt hvað hægt er að
kaupa á vefnum. Vöruúrvalið
nær allt frá hefðbundinni vef-
vöru eins og bókum, geisladisk-
um og DVD eða vídeóspólum
upp í kven- og karlmannsfatnað,
íþróttavörur, gjafavöru og leik-
föng. Oft er hægt að gera góð
kaup. En því miður virðast
grundvallaratriðin gjarnan
gleymast í þeim frumkvöðla-
rekstri, sem vefverslanirnar
óhjákvæmilega teljast, nefni-
lega sjálfsögð atriði á borð við
fullnægjandi vöru- og innihalds-
lýsingu. Þó að vörulýsingu sé
að finna þá er það oftar auglýs-
ingatexti en vöru- og innihalds-
lýsing. Mér er stórlega til efs að
nokkur kaupi vöru sem hann
veit ekki hvort er úr plasti, leir
eða málmi, svo að dæmi sé
nefnt.
Geti „skoöað“ vöruna Um vef-
verslanirnar hljóta að gilda
sömu grundvallaratriðin og
aðrar verslanir; fyrir utan
grundvallarupplýsingar vill
kaupandinn eflaust vita hvað
hann er að kaupa þannig að
honum finnist að hann hafi
„skoðað" vöruna og viti hvern-
ig hún lítur út áður en hann læt-
ur slag standa og stingur vör-
unni í körfuna sína. Hann þarf
að geta skoðað myndir. Þá gild-
ir einu hvort um bætiefni, kaffi-
bolla, hjól, karlmannsjakka eða
bækur, geisladiska og vídeó er
að ræða - eina varan sem getur
www.hagkaup.is er ein af stærri netverslunum landsins. Vöruúr-
valið er takmarkað þannig að myndir eða myndaleysi trufla ekki.
Netverslunin www.jmf.is sýnir myndirafþeim vörum sem eru á
boðstólum.
VefurMáls og menningar, www.malogmenning.is, er litríkur. Á
honum má finna allnokkuð afmyndum.
talist undanþegin þessari reglu
er hugbúnaður og skyldar vör-
ur. Fyrir hinn almenna vefgest
gera myndirnar ekki bara vef-
inn aðlaðandi, skemmtilegan
og „viðskiptavænan" heldur
hljóta skýrar og góðar myndir
af vörunum að vera algjört
grundvallaratriði til þess að við-
skipti geti átt sér stað. Það er
mín skoðun.
Pottur brotinn Því miður er
potturinn allt of oft brotinn hvað
myndirnar varðar. Þær eru litlar
og virðast gjarnan teknar af
áhugamanni á litla myndavél í
stað þess að fá atvinnuljósmynd-
ara með næga þekkingu til
verksins. Það er því hætt við að
útlínur og lögun vörunnar sjáist
ekki nógu vel og myndirnar séu
ekki teknar frá nógu mörgum
sjónarhornum til að fullnægja
forvitni kaupandans. Þá er bráð-
nauðsynlegt að hægt sé að
tvísmella á myndirnar og
stækka þær upp til að skoða vör-
una betur því að litlar myndir
geta haft í för með sér
óþægindatilfinningu um ónóga
vitneskju þegar þessi viðskipti
eiga sér stað. Það er meðal ann-
ars grundvöllurinn að því að vef-
verslun með annað en bækur og
geisladiska geti þrifist á Netinu.
Það er ekki nóg að vera með
vel hannaða og flotta vefversl-
un. Eðlilegar upplýsingar um
vöruna þurfa að liggja fýrir.
Myndir af vörunum þurfa
að vera stórar og skýrar
og helst teknar frá mis-
munandi sjónarhorn-
um.ffij
60
Guðrún Helga Sigurðardóttir.
ghs@talnakonnun.is