Frjáls verslun - 01.11.2000, Side 26
OLGEIR KRISTJÓNSSON MflDUR ÁRSINS
framkvæmdastjóri frá 1985 er við fjórmenningarnir keyptum fyr-
irtækið að fullu, ákvað þá að láta af störfum og seldi hlut sinn Erni
Andréssyni sölustjóra. Félagar mínir tilnefndu mig eftirmann
hans. Kristján vann afar þýðingarmikið starf þegar honum tókst
árið 1983 að landa samningnum um beinlinuvæðingu bankana og
drífa Kienzle tölvufyrirtækið með í þá samninga. Hann keyrði mál-
ið áfram af dugnaði og lipurð. Fyrir tilstuðlan Kiistjáns og frum-
kvæði breyttíst EJS í tölvulyrirtæki."
Hvaða breytingar á EJS gerðir þú eftir að þú tókst við? Hver er
galdurinn á bak við hina árangursríku sögu síðustu ára?
„Fyrirtækið hafði vaxið hratt og hraðar en innviðirnir þoldu. Eg
lagði því alla áherslu á að styrkja þá. Það var í sjálfu sér enginn
sérstakur galdur þar að baki. Þar voru hvorki kraftaverk unnin né
fengum við verkefni sem ollu straumhvörfum. Við fórum að
hyggja að grundvallaratriðum og beita skipulegum aðferðum við
reksturinn. Við byijuðum á að móta stefnu tyrirtækisins og fá
menn til að reyna að sjá framtíðina íyrir - eða ákveða hana öllu
heldur. Gera það upp við sig hvernig fyrirtækið ættí að þróast.
Við létum af örlagahyggju og tókum upp meðvitaða stefnu, hvað
við ætluðum nákvæmlega að taka okkur fyrir hendur og mæld-
um gjöld við tekjur. Það var tekið mjög fast á öllum peningamál-
um. Við keyrðum fyrirtækið upp með stefnumótun, áætlanagerð,
skipulagi, eftírliti og skilvirkri stjórnun þannig að við vissum hvað
biði okkar. Við breyttum um hugsunarhátt og litum ekki lengur
svo á að þetta væri bara vinnustaður þar sem við mættum tíl
vinnu á morgnana. Fyrirtækið var líka arðberandi eign.“
HÆTTI SEM KENNARI - FÖR TIL EJS...
Hvernig kom það til að þú hættir sem kennari við MH árið 1981
og réðst þig til Einars J. Skúlasonar, lítils fyrirtækis?
„Bankarnir voru nýbúnir að bjóða út beinulínukeríi sín og Einar
J. Skúlason, sem hafði umboð fyrir Kienzle-tölvur, hafði áhuga á
að fá verkið og keppti um það við IBM, Digital, Ericsson og fleiri.
Þess vegna var farið út í að ráða tölvumann til fyrirtækisins. Þeir
vissu að ég hafði reynslu af tölvumálum frá því ég var í tölvudeild
Fasteignamats ríkisins og gætí vel hugsað mér að hætta í kennslu
og helja störf í einkageiranum. Það varð úr að ég réð mig tíl fyrir-
tækisins og varð þvi fyrsti tölvumaður þess. Eg man að mitt fyrsta
verk var að forrita bankatölvur sem EJS var þá að flytja inn, þetta
voru skráninga- og tékkalestrarvélar. Auk þess vann ég að undir-
búningi Kienzle-tölvuvæðingarinnar vegna útboðs bankanna sem
við tókum þátt í. A þessum árum var ég einn í tölvudeildinni. En
árið 1983 var komið að þvi hjá bönkunum að velja og hafna í út-
boðinu. Fyrirtækið datt í lukkupottinn; bankarnir völdu Kienzle!
Það kom verulega á óvart, enda bjuggust flestir við að IBM eða
Digital myndi hreppa hnossið. Við þetta þurtti að stækka tölvu-
deildina og bæta þar við þjónustumönnum en fyrst og fremst
þurftí að stækka hugbúnaðardeildina. Svo skemmtilega vill tíl að
við réðum sex manns tíl viðbótar í hugbúnaðardeildina á þessum
tíma og af þeim eru tjórir ennþá starfandi hjá fyrirtækinu."
En hvað kom til að þið fjórmenningarnir keyptuð fyrirtaekið af
Einari J. Skúlasyni á sama tíma og hann var nýbúinn að detta í
lukkupottinn og fá beinlínukerfi bankanna?
„Það var partur af pakkanum við bankana að þjónustan við Ki-
enzle yrði tryggð áfram og að það yrði best gert með því að
lykilstarfsmenn keyptu hlut í fyrirtækinu. Það varð úr að við
keyptum tjórir samtals um fjórðungshlut af Einari árið 1984.
Arið eftir ákvað hann að selja okkur allt fyrirtækið. Hann var
þá búinn að sjá að þetta var eiginlega ekki fyrir hann lengur.
Það voru nýir tölvutímar að ganga í garð. Hann var meira fyr-
ir þær mekanísku. Hann hafði árið 1955 fengið umboð fyrir Ki-
enzle og Sweda og hafði því áralanga reynslu af slíkum vélum.
Kienzle-bókhaldsvélarnar voru svo stórar og sterkbyggðar að
haft var á orði að þær þyldu loftárásir."
Hverjir eru helstu eigendur EJS núna?
„Þrír okkar, Helgi Þór Guðmundsson, Bjarni B. Asgeirsson og
ég, sem keyptum fyrirtækið árið 1985 eigum enn stærstan hluta
í fyrirtækinu, eða um 48%. Hlutur hvers um sig er um 16%. Örn
Andrésson, fyrrverandi sölustjóri, sem keyptí af Kristjáni Auð-
unssyni, er einnig stór hluthafi. Við buðum öllum starfsmönnum
Útnefnt í þrettánda sinn
Dómnefnd Frjálsrar verslunar sem útnefndi Olgeir mann ársins 2000 í atvinnulífinu. Frá vinstri: Gudmundur Magnússon, prófessor i hagfrœði,
Skúli Þorvaldsson, Hótel Holti, Magnús Hreggviðsson, stjórnarformaður Fróða, Benedikt Jóhannesson, framkvæmdastjóri Talnakönnunar,
útgefanda Frjálsrar verslunar, Jón G. Hauksson, ritstjóri Frjálsrar verslunar og Þorgeir Baldursson, forstjóri Prentsmiðjunnar Odda.
FV-mynd: Geir Ólafsson