Fregnir - 01.12.1983, Blaðsíða 13

Fregnir - 01.12.1983, Blaðsíða 13
13 Hjúkrunarbókasafn Hjúkrunarskóli Islands og námslraut Háskóla íslands í hjúkrunarfræði hafa nýlega sameinast um bókasafn. Sam- steypusafn þetta er staðsett í húsnæði Hjúkrunarskólans við Eiríksgötu. Safnið er flokkað eftir bandarísku flokkunarkerfi er tekur til læknisfræði og skyldra greina, National Library of Medicine Classification. Safnið er opið kl. 11-14 þriðjud. - föstud., bókavörður Hjúkrunarskólans er jóhanna D. Skaftadóttir. GK Um útgáfu Fregna - útdráttur úr samþykktum frá 24. okt. 1983 Aðildarfélög Bókavarðafélags íslands og Félag bókasafnsfræðinga sjá um a.m.k. 1 tbl. á ári hvert félag, þannig að út koma minnst 4 tbl. ár hvert. Umsjón með útgáfu felst í því að búa efni til fjölföldunar, að láta fjölfalda það og sjá um dreifingu upplagsins. Einn maður í ritnefnd Bókasafnsins er tengi- liður milli ritnefndar og þeirra sem sjá um útgáfu fréttabréfsins hverju sinni. Tengiliður nú er Viggó Gíslason bókasafni Alþingis (sími 11560) og eru allir bókaverðir hvattir til að senda fréttir og upplýsingar til hans. Um skiptingu efnis milli Fregna og Bóka- safnsins vísast til frásagnar í Bókasafninu 2. tbl. 1983. ÞSS

x

Fregnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fregnir
https://timarit.is/publication/283

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.