Fregnir - 01.02.1991, Page 1
-1-
ENDURMENNTUNARNÁMSKEIÐ á vegum félags bókasafns-
FRÆÐINGA í SAMVINNU VIÐ ENDURMENNTUNARNEFND
HÁSKÓLA tSLANDS
Dagcina 15.-18. apríl n.k. verður haldið endurmenntunarnámskeið sem
ber yflrskriftina "Rannsóknir i bókasafns- og upplýslngafrœðum" í samvinnu
Félags bókasafnsfræðinga og Endurmenntunarnefndar Háskóla íslands.
Markmið þess er að kynna þátttakendum helstu aðferðir sem beitt er við
rannsóknir i bókasafns- og upplýsingafræðum og hagnýtt gildi þeirra.
Lýst verður rannsóknarferlinu, t.d. gerð rannsóknaráætlunar, vali úrtaks
og meðferð gagna. FJallað verður um gæðamælingar og notendakannanir.
Einnig verður fjallað um tölfræði og úrvinnslu gagna í tölvu.
Kynntar verða rannsóknlr, sem gerðar hafa verið á notkun bókasafna og
bent á hvernig styðjast megi við niðurstöður þeirra t.d. við uppbyggingu
safnkosts og upplýsingaþjónustu.
Leiðbeinendur verða Niels Ole Pors, kennari við Danska
bókavarðaskólann (22 tímar). Dr. Benedikt Jóhannesson stærðfræðingur
frá Talnakðnnun (4 tímar), og Dr. Helgi Þórsson forstöðumaður
Reiknistofnunar Háskóla íslands (4 tímar).
Efni þessa námskeiðs á svo sannarlega eríndi til okkar allra. Það mun
t.d. auðvelda okkur að gera einfaldar kannanir á okkar vinnustöðum og
setja upp tölulegar upplýsingar á faglegan hátt. Niels Ole Pors sem verður
aðalleiðbeinandinn leggur áherslu á að vlð framsetningu efnisins er ekki
gengið út frá því að menn hafl þekkingu á tölfræði.
Bókasafnsfræðingum er bent á að innrita sig i tíma, þar sem gert er ráð
fyrir nokkrum undirbúningslestri. Innritun fer fram hjá
Endurmenntunamefnd Háskóla Islands í síma 91-694925
Frekari upplýsingar veita:
Sigrún Magnúsdóttir, Háskólanum á Akureyri
sími: 96-27855
Anna Torfadóttir, Borgarbókasafnl
simi: 91-27155
Félag bókasafnsfræðinga
AUGLÝSING UM STYRK ÚR UTANFARARSJÓÐI B.V.F.t.
Hér með eru auglýstlr til umsóknar styrkir úr Utanfararsjóði
Bókavarðafélags íslands. Þeir einir koma til greina við úthlutun sem eru
skuldlausir félagar Bókavarðafélagsins.
í umsókn skal tilgreina:
- ástæður ferðar
- hvert ferð er heitið
- kostnaðarætlun og annan hugsanlegan íjárstuðning
Umsóknir skulu hafa borist stjóm Utanfararsjóðs Bókavarðafélags íslands
í síðasta lagi 15. apríl 1991 í pósthólf félagsins sem er 1497, 121
Reykjavik.
Nánari upplýsingar gefur Þórdís Þorvaldsdóttir s. 91-27155.
Stjóm Utanfararsjóðs B.V.F.I