Fregnir - 01.12.1994, Síða 5
FREGNIR
Atvinnuauglýsingar
Ég er 28 ára gömul kona frá Kanada og óska eftir atvinnu á
íslensku bókasafni. Ég hef 7 ára starfsreynslu frá Dalhousie
háskóla í Halifax, í bókavörslu þ.á.m., við vörslu skjala og
verðmætra bóka, almannatengsl, fjáröflun, hönnun og ritun
bæklinga og bóka, tölvuskráningu o.fl. Ég tala ekki íslensku en
hygg á íslenskunám um leið og ég fæ atvinnu og dvalarleyfi.
Upplýsingar hjá Eiríki Baldurssyni í s. 91-35364.
Norræna húsið leitar að bókasafnsfræðingi til að leysa af
yfirbókavörð Horræna hússins á tímabilinu 1. janúar til 31. desember
1995. Möguleiki er á að hefja störf 1. febrúar.
Bókasafnið hefur um 30.000 bókatitla á norrænum málum. Auk
þess er þar úrval tímarita, tónlistarefnis, myndbanda og grafíkmynda
frá Norðurlöndum.
Bókasafnið er einnig upplýsingamiðill um norræn málefni og
samfélag.
í bókasafninu starfa tveir bókaverðir auk yfirbókavarðar.
Starfsmenn ttorræna hússins eru alls 15 manns.
Kunnátta í einu eða fleiri Norðurlandamálum er nauðsynleg. Laun
samkvæmt launakerfi ríkisstarfsmanna.
Nánari upplýsingar gefa Guðrún Magnúsdóttir, yfirbókavörður eða
Torben Rasmussen forstjóri Norræna hússins. Síminn er 91-17030
eða 91-17090 (í bókasafninu).
Tímaritastandur til sölu
Vegna breytinga er sýningarstandur fyrir tímarit til sölu. Fullnýttur
tekur standurinn 96 tímarit og er af tegundinni System 101 frá BTJ í
Svíþjóð. Hagstætt verð. vinsamlegast hafið samband við Þórdísi í
Menntaskólanum við Sund. Sími: 91-33419. Tölvupóstnr:
Thordis@ismennt.is.