Fregnir - 01.12.1994, Side 6
FREGNIR
íslensk blöð og tímarit 1974-1993
Skrá með þessu nafni í samantekt Hallfríðar Baldursdóttur er
komin út hjá Landsbókasafni íslands. Skráin, sem er 502 síður
í A4 broti er fjölfölduð og gefin út sem handrit. Hún tekur til allra
blaða og tímarita sem vitað er að hafi komið út 1974-1993. Þetta er
stafrófsskrá eftir titlum. Helstu upplýsingar sem fram koma eru:
Titill, undirtitill, útgáfust., útg., útg.ár. Upplýsingar um 1. árg.
(upphaf útkomu, ritstjóri, fjöldi tbl. 1. árg.). Forði, þ.e. fjöldi tbl.
eða tíðni á ákveðnu árabili. Titilbreytingar, yngra/eldra heiti. Hlé á
útg. ef vitað. Efnisyfirlit, ISSN nr.
Skráin fæst fyrst um sinn í Safnahúsinu við Hverfisgötu og
kostar 3.500 kr.
Skrudda - Tölvupóstlisti bókavarða
Þann 30. okt. s.l. var hrint af stað póstlista fyrir bókaverði hjá
Reiknisstofnun H.í. Allir sem hafa tölvupóstfang geta gerst
áskrifendur að listanum með því að senda línu til
Skrudda@request.rhi.hi.is og biðja um áskrift. Þá fær fólk öll
þau bréf sem Skruddu berast. Þeir sem vilja senda bréf til
póstlistans eiga svo að senda það beint til Skrudda@rhi.hi.is og
þá lendir það beint í tölvupósti áskrifendanna. Til þess að listinn
verði lifandi og skemmtilegur verður fólk að vera duglegt að skrifa
til Skruddu.
Tölvupóstföng bókavarða sem vitað er um eru nú u.þ.b. 50 og
geta þeir sem vilja fengið þau send í tölvupósti frá olofbe@rhi.hi.is.
Askrifendur Skruddu hafa þegar fengið þau send. Ný póstföng má