Fregnir - 01.12.1994, Page 8
FREGNIR
ströndina. Byggingar háskólans frá því á þessari öld eru dreifðar
um bæinn - aðallega uppi á hæðum fyrir ofan miðbæinn.
Evrópumálin - 4. Rammaáætlunin um
rannsóknir og þróun.
Telematikáætlunin 1994-1998, en þar undir heyrir svokölluð
bókasafnaáætlun, hefur nú verið samþykkt í ráðum og nefndum EB.
I þessari nýju áætlun verður lögð áhersla á samvinnu hinna ýmsu
rannsóknargreina innan hennar og er vonast til að niðurstöður muni
þar með nýtast betur. Við mat á umsóknum er lögð áhersla á
notagildi og hagkvæmni.
Fyrstu auglýsingar eftir verkefnum innan
bókasafnaáætlunarinnar munu birtast 15.12.1994 og frestur
gefinn til 15.03.1995.
Nú er verið að ganga frá samningum vegna verkefna sem valin voru
við þriðja útboð vorið 1994. Þ.á.m. er verkefnið ONE (OPAC
Network in Europe), sem er eitt stærsta verkefnið hingað til og taka
þátt í því allir helstu framleiðendur þjóðbókaskráa í Evrópu. Það
byggir á reynslu norræna SR-verkefnisins og EB verkefnunum
SOCKER og ION. Það er Liv Holm frá norska bókavarðaskólanum
sem er framkvæmdastjóri þess. Nánar er hægt að lesa um þetta í DF-
Revy nr. 9 1994 og Telematikáætlunin fæst hjá Rannsóknarráði
íslands. NVBF ætlar að halda ráðstefnu í mars 1995 um norræn
rannsóknarbókasöfn og EB, þar sem einkum verður fjallað um
bókasafnaáætlunina og kynnt verða helstu verkefni sem
Norðurlöndin hafa tekið þátt í.
Ólöf Benediktsdóttir
8