Fregnir - 01.12.1994, Síða 10
FREGNIR
Graham P. Cornish frá British Library tók næstur til máls.
Hann rakti í hverju hagsmunir höfunda, útgefenda, dreifíngaraðila
og notenda væru fólgnir. Hann benti á að notkun hugverka væri
forsenda fyrir tilurð þeirra og að hagsmunir allra þessara hópa færu
vissulega að nokkru leyti saman. Cornish gerði grein fyrir CITED
verkefninu, sem unnið hefur verið á vegum ESPRIT áætlunar
Evrópusambandsins. Að CITED verkefninu (Copyright in
Transmitted Electronic Documents) hafa unnið nokkrir aðilar
frá Belgíu, Frakklandi, Þýskalandi, Hollandi, Spáni og Bretlandi. í
hópnum eru aðilar frá hinum ýmsu starfsgreinum, sem málið varðar.
Hópurinn hefur að mestu lokið starfi sínu og lokaskýrsla um
verkefnið er væntanleg frá British Library. Samið var líkan að því
hvemig stjóma má notkun hvers kyns hugverka í töluvtæku formi
og innheimta gjöld fyrir notkunina. Gert er ráð fyrir að aðgangi sé
stjómað með aðgangsorðum eða "smart cards". Gögn, sem um er
að ræða, geta notið misríkrar vemdar eftir eðli sínu. Notendum má
skipta í flokka eftir starfi, efnahag o.s. frv. Sumir flokkar notenda
geta haft rýmri aðgang en aðrir og gjöld, sem notendur greiða, geta
verið mishá eftir því um hvers kyns notanda er að ræða. Hópurinn,
sem vann að verkefninu boðaði nokkra aðila til funda á meðan á
vinnunni stóð. Fram kom í umræðum að á þeim fundum höfðu
komið fram ábendingar um að skráning á notkun, sem er
óhjákvæmileg við framkvæmd þeirra hugmynda, sem líkanið gerir
ráð fyrir, myndi brjóta gegn löggjöf margra ríkja um skráningu
persónuupplýsinga. Taldi Comish að mæta mætti þessu með því að
fá samþykki notenda fyrir skráningunni.
Nánari upplýsingar um CITED veitir Sarah Keats hjá British
Library. Sími +44 937 546124, fax +44 937 546478, Email
sarah.keates bl.uk
Mads Bryde Andersen, prófessor við Kaupmannahafnarháskóla
lýsti fyrst nokkrum meginreglum varðandi höfundarréttarvernd.
Til að efni njóti höfundarréttarverndar þarf að hafa átt sér stað
sköpun. Bókfræðilegar upplýsingar njóta ekki endilega
höfundarréttarvemdar. Efni, sem nýtur höfundarréttarverndar, er
óheimilt að skrá á tölvutækt form nema með samþykki höfundar.
10