Fregnir - 01.12.1994, Page 13
FREGNIR
heimili ekki að upptökumar séu afhentar öðmm. Hann taldi vanta
ákvæði í lögin um að opinberum stofnunum sé heimilt að varðveita
hljóðupptökur í þágu rannsókna og varðveislu menningar.
Jon Bing, prófessor við Institutt for rettsinformatikk í Oslo, flutti
síðasta erindið á dagskránni. Hann nefndi að ákvæði höfundalaga
um að söfnum væri heimilt að gera eintök til eigin nota tæki aðeins
til gerðar eintaka í pappírsformi. Hann varpaði fram hugmynd að
reglu um að ákveðinn tími þyrfti að líða frá útgáfu verks og þar til
heimilt væri að skrá það á tölvutækt form. Hann taldi réttast að
reyna að leysa höfundarréttarleg vandamál bókasafnanna með
samningum milli samtaka rétthafa, bókasafna og notenda.
Þátttakendur í pallborðsumræðum voru flestir starfsmenn
bókasafna og yfirskrift umræðnanna var "höfundarréttarmálin
frá sjónarhóli notenda". í máli þátttakenda kom fram að söfnin
telja reglur óljósar um hvað þeim sé heimilt gagnvart rétthöfum og
hvað ekki, bæði hvað snertir ljósritun og einnig varðveislu efnis á
tölvutæku formi. Fulltrúar safnanna lögðu áherslu á hlutverk þeirra
við að safna, varðveita og miðla upplýsingum til almennings.
Aðgangur almennings að upplýsingum, sem út hafa verið gefnar, á
ekki að vera háður þeim miðli sem notaður er til að koma
upplýsingum á framfæri. Einnig var bent á að söfnin hafi nú minna
fé til ráðstöfunar en áður, en þurfi samt að mæta auknum kröfum.
Nokkrar umræður urðu um með hvaða hætti mætti standa að
samningum milli rétthafa og notenda. Bent var á að erfitt væri að
finna samtök eða annan aðila sem væri fulltrúi notenda í slíkum
samningum. Hvað varðar íslensku höfundalögin er rétt að
benda á að í þeim er ákvæði um að menntamálaráðuneytið geti með
reglugerð ákveðið að ákvæði um samningskvöð á ljósritun verka
skuli einnig taka til skráningar verka á tölvutækt form. Með því er
átt við að sé fyrir hendi samningur milli samtaka rétthafa og t.d.
bókasafns um skáningu verka er heimilt að skrá verk annarra
höfunda en þeirra sem aðild eiga að samtökunum gegn greiðslu til
rétthafa.
13