Fregnir - 01.12.1994, Side 14
FREGNIR
Þó engin allsherjarlausn hafi komið fram á ráðstefnunni á því
hvemig leysa eigi þau höfundarréttarlegu vandamál sem tengjast
skráningu efnis í gagnabanka, komu margar gagnlegar ábendingar
þar fram. Áberandi var ótti manna við að aukin tölvuskrán-
ing efnis myndi í raun takmarka aðgang almennings að
efninu. það kann að gerast ef framboð á efni í prentuðu formi
minnkar smám saman og ef rétthafar fara þá leið að takmarka aðgang
að tölvuskráðu efni við tiltekna notendahópa. Mikilvægt er því að
það takist að tryggja hagsmuni allra þeirra, sem hlut eiga að máli,
höfunda, útgefenda og notenda.
Skýrsla um norrænt SR-net
Skýrsla um norrænt SR-net er komin út hjá NORDINFO. Verkefnið
hófst í október 1991 en lauk snemma á árinu 1994. Áætlunin var að
koma upp ISO-staðlinum SR í nokkrum upplýsingakerfum á
Norðurlöndum. Meginmarkmiðin voru að gera notendum (end-users
kleift að nálgast gögn úr gagnasöfnum á Norðurlöndunum, öðrum
Evrópulöndum og Norður-Ameríku og auka þekkinguna á OSI-
samskiptareglum almennt í norræna bókasafnaheiminum. Andrea
Jóhannsdóttir^ kerfisbókavörður á Háskólabókasafni, tók þátt í
verkefninu af Islands hálfu.
Bókin heitir Nordic SR-Net. Esbo : NORDINFO, 1994.
(NORDINFO-publikation ; 28) og fæst hjá Kristínu Indriðadóttur í
bókasafni Kennaraháskóla íslands. S. 91-633866. Fax 91-633833.
Tölvupóstfang kindr@ismennt.is
Um skylduskil
Hinn 26. - 29. október sl. sóttu undirrituð ensk-norræna ráðstefnu
um skylduskil í Windsor á Englandi. Ráðstefnan, sem var haldin í
samvinnu NORDINFO og British Library, fjallaði mest um
skylduskil á öðru efni en því sem prentað er og þá einkum um
söfnun og varðveislu efnis í tölvutæku formi. Það liggur fyrir að
orðið er tímabært að endurskoða íslensku lögin um skylduskil, þar
sem orðið hafa gífurlegar breytingar á útgáfuháttum síðan þau voru
14