Fregnir - 01.11.1995, Qupperneq 11
5. Útlánssafn ákveður lánstíma, gjaldtöku og önnur skilyrði.
Lánþegasafn ber ábyrgð á að skila efni á tilskyldum tíma.
6 Þetta efni er allajafna undanþegið millisafnalánum, en söfn geta
sett nánari reglur sjálf:
a) Dagblöð (möguleiki að fá þau á örformi hjá Landsbókasafni
íslands - Háskólabókasafni)
b) Tímarit (ljósrit í stað heftis)
c) Bókaskrár sem notaðar eru í daglegu starfi bókasafnanna, svo
og uppflettirit og handbækur
d) Laus kort og myndir
e) Efni í stóru broti
f) Verðmætt, sjaldgæft, gamalt eða viðkvæmt efni
g) Handrit og efni úr sérsöfnum.
Góó ráð við afgreiðslu millisafnalána
1. Medferd beidna
1.1. Hvernig fylla skal út beiðnir.
Vélrita skal millisafnalánabeiðnir á þar til gerð eyðublöð. Pantanir
sem sendar eru beint um tölvu ber að fylla út samkvæmt
leiðbeiningum þar að lútandi. Beiðnir skulu innihalda nákvæmar
bókfræðilegar upplýsingar um þá grein, rit eða gögn sem beðið er
um. Ef þær eru ekki fúllnægjandi er gott að senda með
upplýsingar um heimild og e.t.v. ljósrit af henni. Hraðpantanir skal
merkja sérstaklega, það sama gildir um nýsigögn. Ef rit sem beðið
er um reynist í útláni, skal taka fram ef óskað er eftir að vera á
biðlista og gefa upp fyrir hvaða tíma lánþegi þarf að fá ritið.
1.2 Lánsskilmálar:
Lánstími er almennt einn mánuður. Að öðru leyti ber að virða þau
skilyrði sem útlánssafn setur. Lánþegasafn ber ábyrgð á efni
fengnu í millisafnaláni þar til það er komið til skila og greiðir
sendingarkostnað og tryggingargjald sé þess krafist. Þess skal
Fregnir 3-4/95 11