Fregnir - 01.11.1995, Qupperneq 16
Fréttir frá stjórnarfundi NORDINFO.
Fundurinn var haldinn í Háskólabókasafninu í Ósló þann 5.
september 1995
Gengið var frá uppkasti að samningi við Norrænu ráðherranefndina
fyrir árin 1996-1998 Hann var síðan lagður fram til samþykktar í
nefndinni 30. september 1995. Fjárhagsáætlun NORDINFO
verður hins vegar unnin eftir fund Norðurlandaráðs í Kuopio í
Finnlandi í nóvember nk
Ljóst er, að breytingar munu verða á flestum nefndum vegna
aðildar þriggja Norðurlanda að Evrópusambandinu. Fyrir okkur
íslendinga er samstarf Norðurlandanna mikilvægara en nokkru
sinni fyrr. Úttekt hefur farið fram á öllum nefndum Norrænu
ráðherranefndarinnar og sú ánægjulega niðurstaða fékkst að
NORDINFO hefúr sannað gildi sitt fyrir “den nordiska nyttan”
Skýrslur eru nú óðum að berast frá verðlaunahöfúm frá
Eystrasaltslöndum, sem unnu í ritgerðasamkeppni NORDINFO
Eins og menn muna óskuðu þrír bókaverðir frá Litháen eftir
kynnisdvöl á íslenskum bókasöfnum. Hamingja verðlaunahafanna
er þvílík, að rætt var um, hvort ekki væri upplagt að efna til
annarrar ritgerðasamkeppni og veita aflur svipuð verðlaun. Sem
kunnugt er, sækjast bókaverðir Eistlands, Lettlands og Litháen
einkum eftir aðstoð við þekkingaröflun en ekki öflun á efni, þegar
um er að ræða að byggja upp bókasafnaþjónustu í þessum löndum.
Rætt er um að halda námskeið og/eða ráðstefnur á vegum
NORDINFO í Eystrasaltslöndum til að gera mönnum þar kleift að
taka þátt á þennan hátt í starfsemi NORDINFO.
Bent er á, að styrkir eru veittir norrænum bókavörðum til dvalar í
Eystrasaltslöndum svo og svæðunum við Barentshaf og i St.
Pétursborg Meiningin með því er, að þeir miðli þá kollegum
16 Fregnir 3-4/95