Fregnir - 01.11.1995, Page 25
Haustferð Félags bókasafnsfræðinga
Þann 23. september sl. héldu 15 bókasafnsfræðingar af stað með
lítilli rútu á vit skemmtunar og fræðslu í Mosfellsbæ. Þegar
þangað kom tóku á móti okkur þær Helga Jónsdóttir og Marta H.
Richter. Ekki fengum við að stíga út úr rútunni fyrir framan hið
nýja Héraðsbókasafn Kjósarsýslu og var brunað strax af stað aftur.
Helga tók að sér leiðsögn í ferðinni enda borin og bamfædd í
Mosfellssveit. Jós hún nú af nægtarbrunni speki og skemmtunar
yfir okkur ferðalangana og virtust allir taka mjög vel við eftir
viðbrögðum að dæma.
Skal leiðsögumennsku Helgu ekki lýst hér í fleiri orðum og fyrr en
varði hafði rútan stöðvast á bílastæðinu við Tröllafoss í Mosfells-
dal. Fáir höfðu augum litið þá ótrúlegu fegurð er við augum blasti.
Lítillega hrímuð jörð og smalamenn á hestum í leit að fé. Að
lokinni hressilegri göngu upp að Tröllafossi var haldið til hádegis-
verðar á sveitakrána Áslák í Mosfellsbæ. Þegar allur matur var á
þrotum buðu Marta og Helga gestum að líta á handunnar vörur
leirkerasmiðsins á staðnum - sem var mjög ánægjulegt fyrir
fegurðarskynið.
Á bókasafnið nýja komum við hressar og kátar eftir gönguferðir og
góðan mat. Ekki var síður vel tekið á móti gestum á heimavelli
Helgu og Mörtu. Þær leiddu okkur um safnið, buðu létta
hressingu og útskýrðu og sögðu frá ýmsu eins og hönnun
tölvustanda, innréttingum, tölvukerfmu, bijóstmynd af Halldóri
Laxness og sýndu okkur skondnar setningar og grínmyndir á
kaffistofú starfsmanna. Eins og vera ber vegna mikils áhuga gesta
og góðrar gestrisni gestgjafa var dvalist heldur lengur en ætlað var,
en að loks hélt hver til síns heima glaður í bragði.
Fregnir 3-4/95 25