Fregnir - 01.11.1995, Blaðsíða 31
Þróunin í starfi hópanna hefiir orðið sú að áhugafólk úr FAS hefur
einnig starfað með upphaflegum hópum og hefúr það samstarf
reynst vel.
í júníhefti Fregna lýsti undirrituð starfsemi stjómunarhóps og í
þessu hefti má sjá ávöxt af starfsemi millisafnalánahóps. Verið er
að endurvekja hóp um fjölþjóðatengsl undir forystu Bókavarða-
félagsins en Hrafn A. Harðarson ritar pistil um þau mál í þetta
blað. Aðrir hópar eru: geymslusöfn, notendafrœðsla- og þjónusta,
tímarit, upplýsingamál, tölvunet- og kerfi og varðveislumál.
Þeir sem hafa hug á að fræðast nánar um starfsemi hópanna er bent
á að hafa samband við undirritaða
Kristín Geirsdóttir, Landsvirkjun
Sími: 515 9114 kgeirs@ismennt.is
Fundir og ráðstefnur
HÁDEGISVERÐARFUNDUR í NÓVEMBER
“Lögverndun starfsheitisins bókasafnsfræðingur”
í stað námskeiðsins sem halda átti í nóvember á vegum Félags
bókasafnsfræðinga og Endurmenntunarstofnunar Háskóla Islands
(sjá tilkynningu hér á eftir) verður boðað til hádegisverðarfúndar
fyrir bókasafnsfræðinga um miðjan nóvember þar sem ætlunin er
að koma af stað umræðum og kanna hug fólks um starfstitilinn
lögverndaða bókasafnsfrœðingur. Er hann okkur til hagsbóta eða
ama? Fundurinn verður auglýstur nánar í nóvember,
Stjóm Félags bókasafnsfræðinga
Fregnir 3-4/95 31