Fregnir - 01.06.2006, Blaðsíða 1

Fregnir - 01.06.2006, Blaðsíða 1
Atburðir á afmælisári 50 ára kennslu í bókasafns- og upplýsingafræði við Háskóla Islands Kennsla í bókasafns- og upplýsingafræði við Háskóla íslands hófst árið 1956. Greinin á því 50 ára afmæli um þessar mundir. Skipuð hefur verið afmælisnefnd og í tilefni afmælisins hafa verið lögð drög að afmælisdagskrá. Bókasafns- og upplýsingafræðiskor mun efna til afmælisatburða á eigin vegum og jafnframt koma að fýrirlestra- og ráð- stefnuhaldi annarra aðila. Dagskráin er ekki endanleg en rétt þótti að birta dagskrárdrög í tölublaði þessu og gefa félögum þannig kost á því að fá yfírlit yfir atburði afmælisársins. 50 ára afmœli kennslu í bókasafns- og upplýsingafrœði við Háskóla íslands Dagskrá afmœlisárs - Fyrstu drög - • 6. september 2006. Fræðslufundur um upplýsingamál, hádegisfundur. • 6. og 7. október 2006. Landsfundur Upplýsingar: Innlegg frá bókasafns- og upplýsingafræðiskor. • 11. október 2006. Fræðslufundur um upplýsingamál, hádegisfundur. • 27. október 2006. Ráðstefna VII í félagsvísindum í Háskóla íslands: Innlegg frá bókasafns- og upplýsingafræðiskor. • 8. nóvember 2006. Fræðslufundur um upplýsingamál, hádegisfundur. • Nóvember 2006. Fyrirlestur um þekkingarstjómun og „informetrics“. Fyrirlesari: Dr. Irene Wormell prófessor við háskólann í Borás. • 10. janúar 2007. Fræðslufundur um upplýsingamál, hádegisfundur. • 7. febrúar 2007. Fræðslufundur um upplýsingamál, hádegisfundur. • Febrúar 2007. Alþjóðleg skráningarráðstefna. Aðalfyrirlesari: Barbara B. Tillett frá Library of Congress. Tengiliður: Hildur Gunnlaugsdóttir Landsbókasafni íslands - Háskólabókasafni. Innlegg frá bókasafns- og upplýsingafræðiskor. • 7. mars 2007. Fræðslufundur um upplýsingamál, hádegisfundur. • 16. mars 2007. Málþing um menntun og þróun í bókasafns- og upplýsingafræði - dagsráðstefna. Innlendir og erlendir fyrirlesarar. Hátíðarkvöldverður. • 11. apríl 2007. Fræðslufundur um upplýsingamál, hádegisfundur. • 26. apríl 2007. Málþing: Rannsóknir nemenda í bókasafns- og upplýsingafræði. • Fyrirhugað er að halda ráðstefnu á vegum Félags um skjalastjórn á afmælisárinu. Þar yrði innlegg frá bókasafns- og upplýsingafræðiskor. Erlendur fyrirlesari og e.t.v. innlendir. Auk ofangreindra alburða hafa þegar verið haldin tvö málþing í tilefni afmælisins. Hið fyrra, Máíþing um rannsóknir í upplýsingahegðun og heilsueflingu, var haldið 24. apríl sl. og hið síðara, Fjölbreytt þekkingarsamfélög: Nýjar rannsóknir í bókasafns- og upplýs- ingafræði, hinn 27. apríl sl. í afmælisnefnd um 50 ára afmæli kennslu í bókasafns- og upplýsingafræði við Háskóla íslands sitja Ágústa Pálsdóttir, Jóhanna Gunnlaugsdóttir (formaður) og Kristín Ósk Hlynsdóttir kennarar í bókasafns- og upplýsingafræðiskor; Heiðrún Dóra Eyvinds- dóttir, Sigríður Halldóra Gunnarsdóttir og Steinunn Aradóttir fulltrúar nemenda í bóka- safns- og upplýsingafræðiskor; Sigrún Klara Hannesdóttir landsbókavörður; Inga Dís Karlsdóttir fulltrúi Félags um skjalastjórn og Guðrún Pálsdóttir fulltrúi Upplýsingar - félags bókasafns- og upplýsingafræða. ítarlegri dagskrá verður send út þegar hún liggur fyrir. Jóhanna Gunnlaugsdóttir formaður afmœlisnefndar

x

Fregnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fregnir
https://timarit.is/publication/283

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.