Skólavarðan - 01.05.1990, Qupperneq 1

Skólavarðan - 01.05.1990, Qupperneq 1
FYLGT ÚR HLAÐI Það blað sem héi er sent til allra skóla, skólanefnda og fræðslustjóra á landinu er málgagn Skólavörðunnar, félags um málefni skólasafna. Starfsemi Skólavörðunnar hefur legið niðri að undanförnu og viljum við því með þessu hefti af Skólavörðunni kynna félagið og um leið kanna hvort grundvöllur er fyrir starfsemi félagsins og hvort menn sjái sér hag í að ganga í það. AF HVERJU SKÓLASÖFN? Oft heyrist því fleygt að bókasöfn séu að verða úreltar stofnanir þar sem börn og unglingar nútímans kunni betur að meta aðra miðla en þá sem eru á boðstólum í skóla- söfnmn. Á sama tíma heyrast áhyggjuraddir vegna þess að lestrarlöngun og lestraráhugi barna fari minnkandi og kannanir sýna að börn lesa minna en áður hefur mælst. Spurningin er því fyrst og fremst sú hvers virði bók- menning sé íslenskri þjóð. Það má einnig telja það undar- legan tvískinnung að um leið og við teljum okkur hluta af upplýsingasamfélagi þjóðanna skuli bókasöfnin, þessar rótgrónu upplýsinga og fræðslustofnanir, eiga undir högg að sækja. 1 ár hefur Unesco, Menningar og vísindastofnun Sameinuðu þjóðanna ákveðið að leggja áherslu á LÆSI, hvers kyns hæfni til að nýta sér heimildir og þekkingu. Það ætti okkur að vera sérstakt ánægjuefni hversu vel við virðumst standa að vígi hvað þetta varðar en hins vegar verðum við sífellt að vera vel á verði svo við glötum ekki því sern íslensk menning byggir helst á, þ.e. heimi bókanna og það er í skólasöfnunum sem börnin geta kjuinst þessutn töfraheimi. SKÓLAVARÐAN. HVERJIR GETA VERIÐ MEÐ? Skólavarðan, félag um málefni skólasafna var stofnað 1983 sem eitt af aðildarfélögum Bókavarðafélags íslands.

x

Skólavarðan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/284

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.